157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:29]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir hennar andsvar. Já, stórt er spurt. Þeim finnst sjálfsagt að bíða bara. Þeim sem hér stendur finnst eitthvað rangt við það að vita einhvern sannleika en hunsa hann. Þegar þú veist að forsendur hafa breyst — ég er ekki að tala um smáar forsendur, smávægilegar breytingar á tölum eða aðstæðum. Við erum að tala um stórar tölur. Það er eitthvað rangt við það, frú forseti, og hlýtur að vera það enda segir í lögum um opinber fjármál að þau séu sett til að stuðla að góðri hagstjórn og styrkri og ábyrgri stjórn opinberra fjármála. Það getur ekki verið styrk og ábyrg stjórn opinberra fjármála að hunsa breyttar forsendur. Við erum ekki að tala um smávægilegar forsendur. Við erum ekki að tala um eina forsendu. Við erum að tala um nokkrar sem búið er að fara margoft yfir í dag í ræðum hverjar þær eru. Mér heyrist og hefur sýnst í álitum hér og ræðum að þarna geti munað kannski 12 milljörðum í minnsta lagi og allt upp í 20 milljörðum sem munar. Þetta er ekki smávægilegt, Ekki ef horft er á áætlaðan halla á næsta ári, afkoman átti að vera í plús um 1 milljarð, þá er það algerlega gjörbreytt. Ekki ef það er horft til stöðugleikareglunnar, ég held að það hafi munað 8 milljónum að hún stæðist. Það er auðvitað farið í vaskinn fyrir löngu síðan. Mér finnst það skipta máli fyrir trúverðugleika. (Forseti hringir.) Ef menn missa trúverðugleikann, stjórnmálin og stjórnvöld, þá vex ótraust og vaxa verðbólguvæntingar. Fólk fer að búast við því að hlutirnir gangi verr ef það missir traust á stjórnmálamönnum og stjórninni.