157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:32]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hann vísaði hér í traust og trúverðugleika en nefndi sömuleiðis lög um opinber fjármál og ég get ekki skilið hv. þingmann öðruvísi en svo að hann telji að þessi afgreiðsla, það að gjörbreyttar forsendur sem standa til grundvallar þessari áætlun séu hunsaðar, stríði hreinlega gegn lögum. Mig langaði í síðara andsvari að spyrja hv. þingmann út í þau orð hans að það væri eins gott að ríkisstjórnin tæki til hendinni og reyndi að færa hér mál í rétta átt. Við höfum auðvitað viljað hrósa þessari ríkisstjórn fyrir að ætla sér að stefna að hallalausum fjárlögum á komandi ári eins og hefur verið farið yfir hér í þingsal en hins vegar blasir við að þær áætlanir munu ekki ganga eftir öðruvísi en að það komi til annaðhvort stórtækur niðurskurður eða þá að það verði gengið enn harðar fram gagnvart heimilum og fyrirtækjum með skattahækkunum. Mig langaði að spyrja hv. þingmann að því hvort hann teldi að yrði ofan á hjá þessari ríkisstjórn. Við erum að tala um stórtækan niðurskurð eða væntanlega verulegar skattahækkanir, annaðhvort á heimilin eða fyrirtækin eða bæði. Hefur eitthvað komið fram við vinnslu þessa máls um hvort verður ofan á eða hreinlega bæði og þá hvernig þetta verður útfært? Getur hv. þingmaður varpað einhverju ljósi á þetta?