157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:36]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Þegar hv. þm. Karl Gauti Hjaltason segir að það sé ekki nóg bara að vona minnir það mig á textann „ég lifi í voninni, að ég geispi ekki golunni“. Það er kannski það sem hæstv. ríkisstjórn er að hugsa akkúrat þessa daga. Það má eiginlega segja að fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 sé kannski ákveðin uppgjöf ríkisstjórnar sem er hálfpartinn búin að geispa golunni. Það er merki um uppgjöf ríkisstjórnar á verkefninu þegar menn nenna ekki einu sinni að uppfæra fjármálaáætlun þegar forsendur eru brostnar og það þarf að uppfæra fjármálaáætlunina.

Þetta minnir mig svolítið á að nú var ég eitt sinn formaður bæjarráðs, í átta ár var ég formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar og við þurftum einmitt að vera með fjármálaáætlun og uppfæra áætlanir okkar, þriggja ára áætlanir sem eru hjá sveitarfélögunum. Ég sé fyrir mér, ef ég bý til eitthvert dæmi þar sem við vissum að það yrði mikill loðnubrestur sem hefur áhrif á tekjur sveitarfélagsins og jafnvel einum kerskála álversins á Reyðarfirði lokað, að við myndum bara samt halda okkur við gömlu áætlunina sem gerði ráð fyrir að álverið væri í fullum gangi og gerði ráð fyrir að það væri loðnuvertíð og út frá þeim forsendum er áætlunin rétt. En við vitum samt þegar við erum að ræða áætlunina að forsendurnar eru ekki réttar. Það verður ekki loðna og búið að slökkva á kerskálanum þannig að forsendur fjármálaáætlunar sem við hefðum þá staðið með í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, vitandi að það stæðist ekki — ef ég sem formaður bæjarráðs væri búinn að gefast upp á verkefninu að lifa í voninni um að ég geispi ekki golunni, þá hefði ég bara sagt: Jæja, ræðum þetta bara svona miðað við það að allt væri hér „kumbaya“. Það er, virðulegur forseti, akkúrat staðan á þessari fjármálaáætlun. Hún er brostin, forsendur hennar eru brostnar en áætlunin er samt látin standa. Það er í rauninni alveg ótrúlegt metnaðarleysi fyrir eigin verkum og gagnvart þjóðinni að bjóða upp á þetta. Svo er sagt: Ja, það tekur tvær vikur að uppfæra áætlunina. Já, þá tekur það bara tvær vikur, hittumst þá bara aftur í ágúst og ræðum fjármálaáætlun sem endurspeglar í rauninni þá stöðu sem uppi er.

Og hvað hefur nú breyst, virðulegur forseti? Jú, hagvöxtur er minni en áætlunin gerði ráð fyrir. Atvinnuleysi er meira en lagt var til grundvallar og áætlaður sparnaður vegna styttingar tímabils atvinnuleysisbóta verður minni vegna þeirra breytinga sem voru gerðar á því frumvarpi í meðförum þingsins. Þetta þýðir á mannamáli að það verður lakari afkoma á ríkissjóði. Minni hagvöxtur þýðir veikari tekjugrunnur og það liggur í hlutarins eðli að hærra atvinnuleysi þýðir meiri útgjöld. Samkvæmt fjármálaáætlun átti hagvöxtur að vera 2,2–2,4% en endar svo í því að samkvæmt nýrri spá Seðlabankans er hann 1,8% og atvinnuleysið er líklega um 0,7 prósentustigum hærra en áætlað var og hvert prósentustig þýðir um 9–10 milljarða í útgjöld ríkissjóðs, þannig að bara þessi kostnaður, 0,7%, er líklega um 6,3–7 milljarðar í aukin útgjöld út af atvinnuleysi og breytingarnar á atvinnuleysisbótunum þýða að sparnaðurinn er minni sem nemur um 1,2 milljörðum kr. Samtals eru þetta um 8 milljarðar kr., virðulegur forseti.

Það er nefnilega skýrt að í lögum um opinber fjármál segir að fjármálaáætlun eigi að byggjast á sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi. Í 8. gr. laganna segir að stefnumörkun í opinberum fjármálum skuli byggjast á traustum forsendum og gögnum. Ég spyr, virðulegur forseti: Hvað af þessari upptalningu hér uppfyllir í rauninni sú fjármálaáætlun sem við erum að ræða núna? Uppfyllir hún varfærnina? Nei, það gerir hún ekki. Stöðugleikann? Nei. Festu? Nei. Gagnsæið? Nei. Að byggjast á traustum forsendum og gögnum, það gerir hún ekki, af því við vitum betur. Samt er haldið áfram og meiri hlutinn viðurkennir að forsendurnar hafi breyst en leggur samt til að áætlunin verði ekki uppfærð. Hvað er það annað en algjör uppgjöf fyrir verkefninu? Hæstv. ríkisstjórn er búin að vera hér við völd í eitt og hálft ár og menn eru alveg búnir á því. Menn hafa ekki einu sinni fyrir því að uppfæra fjármálaáætlun til að hafa hana rétta, til þess að við séum að ræða hér réttar forsendur. Ég hefði bara haldið að ef ég væri hv. stjórnarliði þá myndi ég vilja hafa réttar tölur fyrir framan mig svo að ég vissi hvernig ætti að bregðast við. En nei, það skiptir meira máli að samþykkja þessa röngu fjármálaáætlun til þess að í lok þings verði hægt að dæla út einhvers konar fésbókar- og Instagram-auglýsingum: hallalaus fjárlög 2027 samkvæmt fjármálaáætlun. Út á það gengur þetta, allt einhverjar umbúðir, allt einhver yfirborðsmennska. Út á það gengur þetta en ekki í rauninni að horfa á vandann eins og hann liggur fyrir og takast á við verkefnið heldur gengur þetta allt út á það að reyna að segja þjóðinni eitthvað annað heldur en hlutirnir eru. Hvers lags pólitík er það eiginlega?

En það er ekki bara stjórnarandstaðan sem stendur hér og bendir hæstv. ríkisstjórn og hv. stjórnarmeirihluta á að þetta sé ekki nógu gott. Fjármálaráð og Seðlabankinn hafa varað við. Fjármálaráð hefur varað við því að vísitölutenging almannatrygginga geti skapað misræmi milli útgjalda- og tekjuöflunargetu hins opinbera. Það hefur líka bent á að útgjaldasvigrúmið sem áður var talið til staðar sé ekki lengur til staðar og að endurskoða þurfi útgjaldaþakið til lækkunar. Seðlabankinn hefur sömuleiðis varað við því að breytingar á bótakerfinu geti aukið verðbólguþrýsting og dregið úr hvata til atvinnuþátttöku. Þegar bæði fjármálaráð og Seðlabankinn vara við afleiðingum ákvarðana stjórnvalda á ríkisfjármál, verðbólgu og vinnumarkað þá getur hæstv. ríkisstjórn bara ekki látið eins og ekkert sé. Reyndar hefur hæstv. ríkisstjórn sýnt það og sannað, þegar hún samþykkti hér að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu, að hún hlustaði ekki á Seðlabankann og vildi ekki einu sinni bjóða honum að koma fyrir nefndina. Hún hlustaði ekki á fjármálaráð, hún hlustaði ekki á Samtök atvinnulífsins, hún hlustaði ekki á verkalýðshreyfinguna, hún hlustaði ekki á Læknafélag Íslands og færustu hagfræðinga landsins þannig að það kemur ekkert á óvart, virðulegur forseti, að það sé eins og að skvetta vatni á gæs að gagnrýna hæstv. ríkisstjórn. Seðlabankinn og fjármálaráð hafa það hlutverk að veita og koma með gagnrýni á fjármálaáætlun, en það hlutverk virðist vera algerlega upp á skraut hjá hæstv. ríkisstjórn og alls ekki til þess fallið að fara eitthvað eftir því. Það er sorglegt, virðulegur forseti, að horfa upp á þessi vinnubrögð. Ég verð að segja það.

Eitt alvarlegasta atriðið í þessu er vísitölutenging almannatrygginga, sem er rétt rúmlega 30% af árlegum útgjöldum ríkissjóðs. Fjármálaáætlunin vanmetur langtímaþrýsting almannatrygginga. Frá árinu 2016 til 2025 fjölgaði þeim sem þiggja endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun úr 3.271 í 9.398, þreföldun. Þetta er ekki jaðarvandamál, þetta er ekki eitthvert lítið vandamál sem þarf bara að fylgjast með. Þetta er orðið risastórt vandamál eða áskorun í ríkisrekstrinum. Það þýðir að sjálfsögðu, virðulegur forseti, að það gengur ekki að setja þessa kostnaðarliði bara á sjálfstýringu, en eins og áður segir, hér er búið að vara við þessu af öllum, eins og sagt er, öllum og ömmu þeirra, en það skiptir engu máli.

Það er ekki gott að þessar útgjaldahækkanir séu að gerast á sama tíma og síðan er ríkisstjórnin að boða hér miklar skattahækkanir á sama tíma og hagkerfið er í kólnun. Það á að hækka virðisaukaskatt á baðlón og ríkisstjórnin kallar það allt í einu núna skattstyrk. Þegar ekki er fullnýttur virðisaukinn þá er það nýjasta nýyrði ríkisstjórnarinnar: Nei, þið njótið skattstyrks. Er það þá þannig, virðulegur forseti, að þeir sem eru ekki eins og hv. þingmenn í hæsta skattþrepi, eigum við hv. þingmenn þá að líta svo á aðra sem eru í mið- eða lægsta þrepi að þeir njóti skattstyrks? Það sjá allir hugsandi menn hversu fáránlegt þetta er, þessi uppsetning að segja að þessi fyrirtæki njóti skattstyrks af því þau eru í öðru virðisaukaskattsstigi, þrepi. Síðan á að hækka sértæka skatta á fjármálafyrirtæki og hver skyldi nú borga þann brúsa, virðulegur forseti? Jú, það verða að sjálfsögðu viðskiptavinir bankanna sem munu borga þann brúsa, alveg eins og það eru viðskiptavinir baðlónanna sem borga þann brúsa þegar virðisaukaskatturinn verður hækkaður. Síðan á að lækka endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna íbúðarbygginga. Það á að fara úr 35% í 0%, virðulegur forseti.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur akkúrat lagt til í sínum efnahagstillögum að fara með endurgreiðsluhlutfallið á byggingarstað upp í 100%. Til hvers? Jú, til þess að koma til móts við fólk sem er að kaupa sér húsnæði til að eiga, lækka byggingarkostnað fólksins í landinu, en á sama tíma er ríkisstjórnin að auka í útgjöldin til niðurgreiðslna, 7,5 milljarðar núna á síðustu fjárlögum í niðurgreiðslu til félagslegs húsnæðis, búa til fleiri leiguliða. Það er það sem vinstri mennirnir vilja gera og nú ætla þeir að reyna að gera húsnæði dýrara með því að fella alveg niður niðurgreiðslu vasks af vinnu á byggingarstað. Þetta er bara munurinn á vinstri og hægri mönnum og hann hefur alltaf verið svona. Háir vextir og þrálát verðbólga hafa nefnilega bein áhrif á ríkissjóð. Þessi háa verðbólga er meira og minna búin til, hún er kokkuð upp í eldhúsi hæstv. ríkisstjórnar. Þetta er kokteill sem búinn er til af hæstv. ríkisstjórn með þessum gegndarlausu gjalda- og skattahækkunum núna í desember. Hæstv. fjármálaráðherra gaf lítið fyrir það að stjórnarandstaðan, sem var nú bara að vitna í alla helstu hagfræðinga landsins, verkalýðsforystuna, atvinnulífið og aðra — en reyndar var það nú þannig að báðir aðilar höfðu rangt fyrir sér, af því að það kom svo á daginn að áhrifin á verðbólguna voru miklu meiri en nokkur þorði að spá, því miður. Með háum vöxtum og hárri verðbólgu þá hefur það áhrif á ríkissjóð. Það þrengir líka að heimilunum og fyrirtækjunum. Það veikir fjárfestingu, það lækkar skatttekjur ef hagkerfið kólnar og það gerir ríkisfyrirtækjunum erfitt að fjárfesta, skapa ný störf o.s.frv.

Samt sem áður virðist hæstv. ríkisstjórn eiginlega ekkert ætla að taka mikið til í ríkisrekstrinum með því að reyna að skera fituna af. En þá er samt hér inni 4 milljarða kr. niðurskurður í framhaldsskólum landsins. Þegar stærstu árgangar sem við höfum séð eru að koma inn, risastórir árgangar eru að koma inn, þá skulum við skera niður framhaldsskólana. Ég hef átt samtöl við skólameistara í framhaldsskólum sem sjá ekki fram á annað en að fækka námsbrautum. Og hvað þýðir það að fækka námsbrautum, virðulegur forseti? Jú, þá fækkar þú nemendum. Þú minnkar námsframboðið til að segja upp starfsfólki sem er að kenna við einhverjar námsbrautir til að ná saman rekstrinum miðað við niðurskurðarkröfu í framhaldsskólunum. Þetta er algjörlega óskiljanlegt. En á sama tíma er hægt að dæla út peningum í alls konar gæluverkefni, sérstaklega Flokks fólksins. Það er hægt að eyða 600 milljónum í atkvæðagreiðslu. Það er hægt að eyða 2–3 milljörðum í að halda úti opinberum embættismönnum í Brussel næstu mánuði og ár. Þá eru til peningar, virðulegur forseti, en í framhaldsskólunum á að skera niður námsframboðið.

Virðulegur forseti. Hvað hefði í rauninni ríkisstjórnin átt að gera núna? Að sjálfsögðu hefði hún átt að uppfæra fjármálaáætlunina, byggja á nýjum efnahagsforsendum og leggja fram raunverulegar aðhaldsaðgerðir í stað þess að fara enn og aftur hina klassísku og einu leið vinstri manna þegar ríkisstjórnin er búin að eyða um efni fram; að eyða annarra manna fé, sækja dýpra í vasa almennings.

Það hefði kannski verið betur við hæfi, virðulegur forseti, ef hæstv. ríkisstjórn hefði nú kannski gefið sér eins og hálfan dag, þótt það væri ekki nema hálfur dagur, til að líta á nýjustu efnahagstillögur Sjálfstæðisflokksins, þar sem er lagt til að selja ríkiseignir upp á 680 milljarða kr. til að lækka skuldir ríkisins og þar með lækka vaxtabyrði ríkisins á hverju ári um 50 milljarða kr., að réttindi og skyldur opinberra starfsmanna færist nær því sem þekkist á almennum vinnumarkaði, að lækka skatta og gjöld á fólkið í landinu um 140 milljarða, m.a. með afnámi erfðafjárskatts, stimpilgjalds, útvarpsgjalds og kolefnisgjalds, og einu tekjuskattsþrepi upp á 35%. Þetta eru tillögur sem hleypa súrefni inn í íslenskt atvinnulíf. Þetta eru tillögur sem hjálpa íslenskum heimilum yfir erfiðasta hjallann en mun ríkisstjórn Íslands hlusta eitthvað á það? Nei, hún ætlar að auka skatta. Við erum að ræða hér, virðulegur forseti, eins og ég byrjaði í upphafi ræðu minnar, áætlun sem gerir ekki ráð fyrir því að ef við værum að ræða áætlun í Fjarðabyggð og við værum samt með brostnar forsendur en ætlum samt að ræða gömlu áætlunina — og það er rétt, þessi áætlun er mögulega kannski rétt miðað við gömlu tölurnar. En við erum bara ekkert að ræða gamlar tölur núna. Þetta er merki um ríkisstjórn sem er uppgefin, hún er búin á því og hún er við það að geispa golunni.