157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:57]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Við ræðum hér fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031, eitt mikilvægasta stefnumótunartæki ríkisins á sviði efnahags og fjármála. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmönnum sem tekið hafa þátt í málefnalegri og uppbyggilegri umræðu í dag. Slíkar umræður eru grundvöllur góðrar lagasetningar og skynsamlegrar hagstjórnar.

Markmið fjármálaáætlunarinnar eru skýr og mikilvæg: að styrkja stoðir íslensks efnahagslífs með auknum aga, festu og ábyrgð í ríkisfjármálum. Þar ber hæst að gert er ráð fyrir því að hallarekstri ríkissjóðs verði snúið í afgang árið 2027 og jákvæð afkoma haldist á öllu tímabilinu. Þótt afgangurinn sé hóflegur í upphafi er mikilvægt að undirstrika að það er viðsnúningurinn sjálfur sem skiptir höfuðmáli. Það að vera réttum megin við núllið er ekki smávægilegt atriði heldur grundvallarbreyting eftir árabil með viðvarandi hallarekstri.

Samhliða því að stefnt er að hallalausum rekstri ríkissjóðs er gert ráð fyrir því að skuldahlutfall hins opinbera lækki markvisst, úr 44% af vergri landsframleiðslu niður í 41% árið 2031. Það er jákvæð þróun sem skiptir miklu máli fyrir stöðugleika í hagkerfinu og traust í ríkisfjármálum, ekki síst fyrir vaxtastig í landinu. Við vitum að auknar skuldir og ójafnvægi í ríkisfjármálum leiða til hærri vaxta sem bitna beint á heimilum og fyrirtækjum.

Áætlunin felur í sér aðhald en mikilvægt er að átta sig á því að hér er ekki verið að boða niðurskurð í hefðbundnum skilningi. Áherslan er á skýra og gegnsæja forgangsröðun þar sem opinbert fé er nýtt þar sem mest þörf er fyrir það og árangur næst. Grunnþjónusta við almenning verður varin og jafnvel styrkt og þá sérstaklega í lykilmálaflokkum eins og heilbrigðisþjónustu, menntun, samgöngum og málefnum barna. Sérstaklega vil ég nefna aukin framlög til barna- og fjölskyldumála þar sem gert er ráð fyrir verulegri aukningu fjár til úrræða fyrir börn, m.a. til að stytta biðlista eftir greiningum og styrkja þjónustu. Slíkar fjárfestingar eru ekki aðeins félagslega mikilvægar heldur einnig hagfræðilega skynsamlegar til lengri tíma litið.

Sama má segja um aukin framlög til lögreglu og grunninnviða samfélagsins. Löggæsla er mér gjarnan hugleikin og mér finnst rétt að tiltaka sérstaklega að fjölgun lögreglumanna um 50 á síðasta ári er varanleg og fjárveitingar þá auknar varanlega um u.þ.b. 1,2 milljarða kr. Þá er verulega bætt í varðandi fangelsismál vegna byggingar nýs öryggisfangelsis að Stóra-Hrauni, auk þess sem rekstur Fangelsismálastofnunar hefur verið styrktur. Einnig er rétt að nefna að útgjöld vegna móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd hafa lækkað verulega vegna færri umsókna.

Í fjármálaáætlun fyrir 2027 og 2028 er gert ráð fyrir auknum fjárveitingum til framhaldsskólanna, einkum vegna fjölgunar nemenda, verknáms og aukinnar áherslu á STEM-greinar. Fjölgun nemenda er til komin eins og kunnugt er vegna þess að mjög stórir árgangar eru að hefja nám í framhaldsskóla. Þá fjölgar fötluðum nemendum sem fara í framhaldsskóla og iðnnemum fjölgar. Þá er rétt að geta þess að langflestir einstaklingar í árgangi fara í framhaldsskóla. Þá má nefna stækkun fimm verknámsskóla en framkvæmdir eru komnar af stað í Breiðholti og í rauninni hillir þar undir verklok. Fram undan eru sambærileg verkefni á Suðurnesjum, Akureyri, Ísafirði og Sauðárkróki. Það skiptir máli vegna þess að verkmenntun hefur of lengi verið vanmetin í íslensku samfélagi. Við erum að tala um fjárfestingu upp á yfir 8 milljarða þegar hlutur sveitarfélaga er talinn með. Stefnt er á að framkvæmdir við þessa skóla hefjist á nýju ári. Einnig mun nýr 30.000 m² tækniskóli rísa í Flensborgarhöfn í Hafnarfirði fyrir 3.000 nemendur. Hann verður byggður í einum áfanga í stað tveggja. Framkvæmdir munu hefjast árið 2028.

Á sama tíma er lögð áhersla á hagræðingu í ríkisrekstri. Það er m.a. stefnt að 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu án uppsagna með eðlilegri starfsmannaveltu og bættri nýtingu mannafla. Hér þarf að fara varlega og af ábyrgð. Starfsfólk ríkisins sinnir fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum og er ein okkar af okkar verðmætustu auðlindum en það er jafnframt hlutverk þeirra sem fara með opinbert fé að tryggja að reksturinn sé sjálfbær og umfang hans sé í samræmi við þarfir samfélagsins hverju sinni.

Fjármálaáætlun nú grundvallast á spá Seðlabanka Íslands í fyrsta sinn en áður var stuðst við hagspá Hagstofu Íslands. Þessi breyting er m.a. tilkomin vegna þess að Seðlabankinn býr yfir meiri þekkingu á spágerð og hefur jafnframt yfir að ráða þroskaðri og fullkomnari líkönum og undirlíkönum. Þá spilar inn í að æskilegt er að þær forsendur sem liggja að baki ákvarðanatöku í peningamálunum hvíli á sömu forsendum og stýring ríkisfjármála.

Í rammagrein 1 í fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 er fjallað um spágerð. Þar kemur fram að framlögð fjármálaáætlun byggist á febrúarspá Seðlabanka Íslands og að ráðuneytið geri ekki ráð fyrir því að forsendur fjármálaáætlunar verði uppfærðar miðað við næstu spá sem var birt 20. maí. Seðlabankinn gefur út spá fjórum sinnum á ári, 4. febrúar, 20. maí, 19. ágúst og 18. nóvember. Rökin fyrir þessu eru tvíþætt. Í fyrsta lagi myndi uppfærsla miðað við maíspá Seðlabanka Íslands ríma illa við starfsáætlun þingsins en starfsáætlun gerði ráð fyrir þingfrestun 12. júní sem ekki eru líkur á að gangi eftir. Þegar spá Seðlabanka Íslands liggur fyrir þarf ráðuneytið eina til tvær vikur til þess að gera forsendurnar fyllri. Seðlabankinn spáir til þriggja ára en fjármálaáætlun er til fimm ára. Þá eru ýmsar forsendur sem eru nauðsynlegar fyrir tekju- og gjaldaáætlun ríkissjóðs sem þarf að áætla sérstaklega, t.d. spá um þróun stýrivaxta og fjölda ferðamanna til að nefna fáein dæmi. Þessar forsendur eru ekki birtar með spá Seðlabankans. Í kjölfar þess þarf að endurmeta tekjuáætlun ríkissjóðs en sú vinna tekur að jafnaði um eina viku.

Seinni rökin snúa að áhrifum uppfærslu á þjóðhagsspá fyrir forsendur um fimm ára stefnumörkun. Almenn reynsla er sú að forsendur þjóðhagsspár hafi ekki afgerandi áhrif á stefnumörkun til fimm ára sem er eitt meginhlutverk fjármálaáætlunar. Áfram erum við bundin af forsendum fjármálastefnu um afkomu og skuldaþróun eða birtri stefnumörkun. Því hefur reynsla undanfarinna ára verið sú að uppfærsla með nýrri þjóðhagsspá hefur frekar ýtt einstaka tölum áætlunar til eða frá en meginstefnumörkun hefur tekið minni breytingum. Rétt er að hafa í huga að breyting á áætlunum um útgjöld stendur ekki ein og sér heldur er matið heildstætt og ný spá Seðlabankans hefur einnig áhrif á tekjuhliðina.

Ljóst er að fjárlagafrumvarp komandi árs, þ.e. 2027, mun hvíla á uppfærðum forsendum uppfærðrar þjóðhagsspár, maíspár, en frumvarpið kemur fram í haust, þ.e. 8. september. Þá er fyrirhugað að frumvarpið taki breytingum í samræmi við forsendur ágústspárinnar fyrir 2. umræðu frumvarpsins. Það er því ljóst að tekið verður tillit til uppfærðra forsendna í fjárlagavinnunni sem fram undan er.

Einhverjar þekktar breytingar hafa komið fram á forsendum fjármálaáætlunar sem snúa að öðru en forsendum þjóðhagsspár. Þar má helst nefna breytingu velferðarnefndar á frumvarpi um styttingu atvinnuleysisbótatímabilsins en sú breyting kom fram í byrjun þessa mánaðar. Breytingin hefur í för með sér að hagræðingaraðgerðirnar verði minni en fyrirhugað var. Bótatímabil atvinnuleysis fer úr 30 mánuðum í 24 í stað 18 mánaða eins og lagt var upp með í frumvarpi um styttingu bótatímabils. Hins vegar þarf að skoða áhrif þessa í samhengi við um 40 milljarða útgjöld vegna atvinnuleysis og þá staðreynd að nokkurt svigrúm er í almennum varasjóði umfram hið lögbundna lágmark sem vegið getur á móti afkomuáhrifum þessarar breytingar. Þá er drifkraftur útgjalda vegna atvinnuleysis það atvinnuleysisstig sem fólgið er í spá um þróun atvinnuleysis en uppfærð spá um atvinnuleysi mun verða ein af forsendum fjárlagafrumvarpsins í haust.

Forseti. Við lifum á tímum þar sem efnahagsumhverfið er krefjandi. Verðbólga er enn of há og mælist um og yfir 5%. Vextir eru hærri en æskilegt er. Óvissa í alþjóðahagkerfinu hefur aukist. Í slíku umhverfi verða fjármál hins opinbera að vera traust. Það er lykilatriði að fjármálastefna ríkisins styðji við peningastefnu Seðlabankans en vinni ekki gegn henni. Ábyrg ríkisfjármál eru ein helsta forsenda þess að hægt sé að ná tökum á verðbólgu og lækka vexti. Það skiptir almenning í landinu gríðarlega miklu máli. Lægri vextir þýða lægri greiðslubyrði, meira fjárhagslegt svigrúm og aukinn stöðugleika í daglegu lífi. Í því samhengi er jákvætt að sjá áherslur á nýsköpun, máltækni og gervigreind. Slíkar fjárfestingar geta haft veruleg áhrif á framtíðarhagvöxt og tryggt samkeppnishæfni íslensks efnahagslífs.

Ég vil einnig nefna mikilvægi þess að tekjuöflun ríkisins sé sjálfbær. Í áætluninni er gert ráð fyrir að hlutfall skatttekna af landsframleiðslu lækki lítillega á tímabilinu. Það kallar á að við tryggjum að skattkerfið sé skilvirkt, sanngjarnt og styðji við verðmætasköpun. Þá er mikilvægt að nefna umræðu um almannatryggingar. Fjármálaráð hefur bent á áhættu sem felst í víðtækri og sjálfvirkri vísitölutengingu þeirra. Það er áhyggjuefni sem þarf að taka alvarlega, enda getur slíkt skapað misræmi milli útgjalda- og tekjuöflunargetu ríkisins til lengri tíma.

Ég vil í þessu sambandi nefna atriði sem ég hef tiltekið nokkrum sinnum í þessu sambandi í þessum ræðustól. Breytingar þær sem samþykktar voru á lögum um almannatryggingar hér á þingi í mars síðastliðnum eru ekki þær grundvallarbreytingar að mínu mati sem af er látið. Í stað þess að miða við launaþróun í 62. gr. laganna er miðað við þróun frá 1. júní 2025 og launavísitölu, samanber lög um launavísitölu, hvort tveggja fyrir og eftir breytingu þá sem gerð var á 62. gr. laga um almannatryggingar. Skulu greiðslur almannatrygginga breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni.

Fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 markar skýr tímamót. Hún felur í sér viðsnúning frá hallarekstri yfir í afgang, markvissa lækkun skulda og skýra áherslu á stöðugleika og sjálfbærni. Hún er metnaðarfull en einnig raunhæf og tekur mið af þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir en þessi áætlun er ekki markmið í sjálfu sér. Hún er tæki, leiðarvísir að betra samfélagi þar sem lífskjör batna á grundvelli raunverulegrar verðmætasköpunar. Það krefst aga, ábyrgðar og langtímahugsunar. Það krefst þess að við tökum erfiðar ákvarðanir, forgangsröðum skynsamlega og höfum kjark til að horfa til framtíðar.

Forseti. Með þessari fjármálaáætlun er stigið mikilvægt skref í átt til stöðugra og sterkara hagkerfis. Það er verkefni okkar allra að standa vörð um þá stefnu og tryggja að hún nái fram að ganga. Fjármálaáætlun næstu ára byggist á skýrum markmiðum um ábyrg og sjálfbær opinber fjármál. Þar er lögð áhersla á hóflegan vöxt útgjalda, traustar efnahagsforsendur og stefnu um hallalaus fjárlög árið 2027 sem fer jafnvel lengra en stöðugleikareglan krefst. Efnahagshorfur eru varfærnar en stöðugar, gert er ráð fyrir hóflegum hagvexti, lægri verðbólgu og jafnvægi á vinnumarkaði. Á sama tíma er viðurkennd sú óvissa sem fylgir alþjóðlegum aðstæðum og mikilvægi þess að byggja upp svigrúm til að bregðast við áföllum.

Megináherslur áætlunarinnar eru skýrar. Halda þarf áfram að styrkja grunnstoðir samfélagsins með fjárfestingum í heilbrigðisþjónustu, innviðum, menntun og nýsköpun. Sérstök áhersla er lögð á að mæta öldrun þjóðarinnar og tryggja sjálfbært velferðarkerfi til framtíðar. Jafnframt er unnið að aukinni framleiðni og samkeppnishæfni með stuðningi við nýsköpun, tækniframfarir og skilvirkt regluverk. Markmiðið er að skapa betri lífskjör og tryggja að hagvöxtur skili sér til alls samfélagsins. Að lokum er ljóst að árangur byggist á ábyrgð, aga og góðu samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Með því getum við tryggt stöðugleika, aukið velferð og byggt upp öflugt samfélag til framtíðar.

Mig langar í lokin, frú forseti, að draga athygli að rammagrein 4 með fjármálaáætlun þar sem fjallað er um batnandi lánshæfismat ríkissjóðs hjá alþjóðlegum matsfyrirtækjum. Einnig er rétt að nefna árlega úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á íslensku efnahagslífi nú nýverið. Í þeirri skýrslu segir m.a.:

„Stjórnvöld hafa með viðeigandi hætti hert taumhald í hagstjórn til að bregðast við innlendum eftirspurnarþrýstingi. Þrátt fyrir það hafa launahækkanir verið töluverðar, verðbólga haldist mikil og verðbólguvæntingar háar. Jafnframt hefur aukin alþjóðleg óvissa vegna átaka í Mið-Austurlöndum aukið hættu á að hagvöxtur verði minni en ella og að verðbólga verði meiri. Meginverkefni hagstjórnarinnar eru því að koma verðbólgu í markmið og auka viðnámsþrótt gegn áföllum með því að auka svigrúm í ríkisfjármálum og halda áfram kerfislegum umbótum.“

Frú forseti. Mér sýnist sem þessir aðilar séu bærilega sáttir við það hvað stjórnvöld eru að gera til að ná tökum á efnahagsmálum þjóðarinnar en það eru ærin verkefni fram undan.