fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Mig langar að staldra við breyttar forsendur fjármálaáætlunar. Ég heyrði að hv. þingmaður fór yfir að ein ástæða þess að talið er æskilegt að miða ekki við nýjustu spá eða nýjasta grunn þess að gera áætlun, sem væri þá best til þess fallið að vísa okkur leiðina hér til næstu ára, væri t.d. að starfsáætlun var sett til 12. júní, eins og nú yfirleitt gert og þetta passaði kannski ekki alveg inn í skipulagið. Mig langar því þó að nefna, frú forseti, að áætlunin 2020–2024, 2021–2025, 2022–2026 og 2023–2027, í öllum þeim tilvikum var fjármálaáætlun upp reiknuð og breytt á milli umræðna út af breyttum forsendum. Þrátt fyrir starfsáætlun, þrátt fyrir skipulag þingsins og að allir hefðu mikið að gera þá var litið á það sem slíkt grunnatriði til þess að gera þetta vel. (Forseti hringir.) Eina tilfellið milli 2024 og 2028 var þó ekki uppfært því að þá kom í ljós að efnahagsforsendurnar voru jákvæðari þannig að það var látið standa. Mig langar að fá sjónarmið hv. þingmanns á þessari stöðu.