157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:11]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir hennar andsvar. Ég á svo sem ekki mikið svar við þessum samanburði en það er þannig samt sem áður að fjöldinn allur af forsendum breytist með þjóðhagsspá. Reynslan sýnir að það er ekki endilega til bóta að uppfæra slíkar áætlanir og í álitinu er ekki nefnt það sem mest vegur til að hækka tekjur, sem er spá um aukna verðbólgu. Mér finnst nú kannski ekki rétt að vera að hossa sér mikið á því að tekjur aukist með aukinni verðbólgu, en engu að síður þá gerist það þannig að það verða hækkanir báðum megin, bæði á gjöldum og tekjum. Ég verð að viðurkenna að ég á ekki önnur svör við því heldur en ég var með í ræðu minni, að samkvæmt áætluninni var gert ráð fyrir því að uppfæra hana ekki, það lá fyrir. Það hefði kannski mátt gera þessar athugasemdir fyrr hefði það verið áhugi minni hlutans.