157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:14]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég held að tilgangur áætlunarinnar sé að leggja fyrir sér veginn fram á við og sjá fyrir okkur að hlutirnir muni þróast til framtíðar. Það er hins vegar þannig að það eru áætlanir ofan á áætlanir og það eru mýmörg atriði sem koma þar til álita. Eins og ég nefndi hér áðan þá eru mjög margar forsendur í áætlun, sem síðan eru negldar niður í fjárlögunum. Þó svo að ég leggi áherslu á það og finnist mikilvægt að við höfum þessa fjármálaáætlun þá finnst mér mikilvægara, og kannski erum við bara sammála um það, að fjárlögin séu þar sem við leggjum áherslu á. Mér finnst kannski að ég sé ekki að svara þessari spurningu sérstaklega vel, af hverju við ættum að vera með þessa áætlun, en ég tel að hún gagnist nú engu að síður.