157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:15]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir ræðu hans. Það er alltaf ánægjulegt að sjá þó að hér koma upp stjórnarliðar — það mætti vera meira af því — og búa þá til þessar umræður milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Þar sem tíminn er knappur ætla ég að koma mér að efninu. Nú virðist það hafa verið stefnan hjá hæstv. ríkisstjórn, sem við sáum í síðustu fjárlögum, að ætla að hækka skatta og álögur á almenning og fyrirtæki í landinu til að eiga fyrir auknum útgjöldum. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann er sammála þeirri nálgun, sem við sjáum einnig í þessari fjármálaáætlun, að hækka skatta í staðinn fyrir að reyna að draga úr ríkisútgjöldum og skera fituna af rekstri ríkisins.