fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir andsvar hans. Stutta svarið er að ég er honum innilega sammála. Ég vil miklu frekar reyna að ná tökum á útgjöldum en hækka skatta. Hann er náttúrlega kominn fram þessi skattur, bæði bankaskattur og skattur á baðlón, sem liggur fyrir að leggja á. Á ég að svara þeirri spurningu hvort ég sé ánægður með þessa skatta? Nei, ég er það ekkert sérstaklega, ekkert frekar en með aðra skatta. En ég held að á þessum tímapunkti verðum við einhvern veginn að ná að sigla út úr því að það séu hvort tveggja þessar skattahækkanir, kannski óumflýjanlegar, og við þurfum líka að skera niður og einhvern veginn að hafa blöndu í þessu efni.