157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:17]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að heyra að hægra hjartað slær nú í hv. þingmanni, a.m.k. að því leyti að hann er ekki fylgjandi skattahækkunum. Nú komum við að því þar sem á að skera niður í rekstri ríkisins og það er þessi 4 milljarða kr. niðurskurður í framhaldsskólum landsins. Ég veit að ráðast á í fjögur verknámshús og það er vel. En það er svolítið sérstakt á móti að það er komin niðurskurðarkrafa á framhaldsskólana upp á 4 milljarða kr. Er hv. þingmaður sammála því að þarna, af öllum stöðum, eigi að bera niður þegar hagræða á í rekstri ríkisins?