157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:18]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir síðara andsvar hans. Það er auðvitað rétt, og ég er ekkert að reyna að víkja mér undan því, að það verður niðurskurður á tímabili áætlunarinnar. Það verður hins vegar bætt í nú fyrir árin 2027 og 2028 vegna stórra árganga. Síðan verður skorið niður eftir það. Ég ætla að leyfa mér að vera jákvæður fyrir því að úr rætist þegar líður á áætlunina. Það kemur önnur áætlun að ári og þá sé möguleiki á því að þetta verði lagað.