fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir að taka þátt í umræðunni. Mér finnst með ólíkindum að við séum að ræða þetta mikilvæga mál og að stjórnarliðar mæti ekki. En hv. þingmaður gerir það og hv. þingmaður tekur líka málefnalega afstöðu til spurninga og það er vel. En ég ætla ekki að þæfa meira um þetta enda er það ekki hv. þingmanni að kenna hvers vegna menn reikna ekki upp þessa áætlun. En það er tvennt sem ég spyr hann um: Hvernig líður hv. þingmanni með það að það er ekkert komið til móts við alvarlegar athugasemdir fjármálaráðs, sem er hinn faglegi hópur sem á að greina fjármálaáætlun og kom með athugasemdir? Það er ekkert komið til móts við það. Sömuleiðis vil ég líka spyrja hv. þingmann vegna þess að við hefðum ekki fengið og fáum ekki svör við spurningu sem við þurfum til að vinna vinnuna okkar. Ég er t.d. að tala um það hvernig útgjöld til varnarmála eiga að vera. Sömuleiðis varðandi það hver munurinn er á uppgjöri því sem ríkisstjórnin notar í sínum (Forseti hringir.) áróðri og ríkisreikningi. Ég hef aldrei upplifað þetta áður á mínum þingferli, að vera neitað um upplýsingar. Ég vil spyrja hv. þingmann hvað honum finnist um þetta.