157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:21]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans andsvar. Hvernig mér líður? Ég veit það ekki. Ég ber mjög mikla virðingu fyrir fjármálaráði og því sem frá þeim kemur. Ég verð að viðurkenna að þegar fjármálaráð fór yfir sínar athugasemdir — annars vegar þegar maður fer yfir athugasemdir fjármálaráðs með fjármálaráði og síðan með fulltrúum fjármálaráðuneytisins þá veltir maður fyrir sér hvort hægt væri að ná árangri með því að þetta fólk tali meira saman. Mér finnst eins og verið sé að gera þessar ályktanir svolítið í einangrun og að það vanti samtal. En ég bara ítreka það að auðvitað á að bregðast við því sem fjármálaráð segir. Ég tel að það sé horft til þess. Ég get ekki tekið annað út úr þessu. Varðandi gögn og upplýsingar til þingmanna, mér finnst það grundvallaratriði að framkvæmdarvaldið (Forseti hringir.) sé ekki að beygja sig undan því að skila þeim upplýsingum sem það getur mögulega útvegað okkur. En bara svo ég vísi til þess sem varðaði (Forseti hringir.) efni frá utanríkisráðuneytinu, sem við fengum annaðhvort í gær eða fyrradag í fjárlaganefnd, þá virtist það vera að það væri ekki hægt. Það var engin önnur skýring. Mér finnst ekki fara vel á því.