fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir skýr svör og ég vonast til þess að hv. þingmaður og aðrir hv. þingmenn sem hugsa málin aðeins lengra en bara í einhverri stjórn og stjórnarandstöðu, fari á lestina með það að við fáum upplýsingar sem við þurfum til að vinna vinnuna okkar. Ég er búinn að vera hér síðan 2003 og ég hef aldrei upplifað þetta með þessum hætti. Hv. þingmaður vísaði í tölvupóst sem við fengum í gær eða fyrradag, að þetta væri bara ekki hægt, sem stenst enga skoðun. Þetta er samanburðarhæft á milli landa og þetta er bara með ólíkindum og bara grafalvarlegt því að allt það sem gert er skapar fordæmi. Ég sé ekki í nefndaráliti meiri hlutans að neins staðar sé tekið á athugasemdum fjármálaráðs. Það eru engar breytingartillögur við fjármálaáætlun. Þetta eru 15 atriði sem eru tilgreind, 14 með alvarlegum athugasemdum og það er ekkert brugðist við því og það finnst mér vera grafalvarlegt mál.