157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:24]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans síðara andsvar. Við erum áfram í athugasemdum fjármálaráðs. Jú, jú, ég held að það færi miklu betur á því að þetta væri ávarpað með mun skýrari hætti. Eins vil ég ítreka það að mér finnst ekki fara vel á því að það sé raunverulega skýringarlaust þegar sagt er að ekki sé hægt að afhenda gögn. Það kallar raunverulega á að við fáum skýringu á því af hverju ekki er hægt að afhenda tiltekin gögn. Það er þó engu að síður þannig, og kannski er það létt í vasa, að fjármálaráð staðfesti þó alla vega fjármálaáætlunina í lokamálslið, held ég, sinnar greinargerðar. Ég veit að ég er alveg á nippinu með að vera að snúa út úr en það er engu að síður þannig; með þessum athugasemdum sem þeir gerðu þá staðfestu þeir engu að síður áætlunina.