fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég var svo sem á svipuðum slóðum og í fyrsta andsvari frá hv. þm. Hildi Sverrisdóttur varðandi uppreikning á áætluninni eftir breyttar forsendur. Ætli ég verði ekki að reyna að snúa spurningunni þá upp í það: Getur hv. þingmaður lýst fyrir mér í hverju vinna meiri hluta fjárlaganefndar fólst? Hvernig leit meiri hluti fjárlaganefndar á hlutverk sitt þegar fjármálaáætlun var komin til nefndar? Hvað var það sem nefndin átti að gera? Því þegar ég les nefndarálit meiri hlutans þá sé ég ekki viðbrögð við þeim alvarlegu ábendingum og ályktunum sem fjármálaráð dregur af fjármálaáætluninni. Svo bætist við þessi nýja hagvaxtarspá frá Seðlabankanum og ljóst er, og það stendur í nefndarálitinu, að forsendur eru að einhverju leyti brostnar.(Forseti hringir.) Það er samt ekki farið fram á uppreikning, þannig að ég bara velti fyrir mér: Hvað var nefndin að gera? Hvernig horfir hv. þingmaður á þetta? Hvert var hlutverk nefndarinnar í þessu ferli?