157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:27]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir andsvarið. Nú ætlar sá sem hér stendur ekki að halda því fram að hann hafi langa þingreynslu en hins vegar held ég að vinnan í þessari nefnd hafi verið hefðbundin. Það var að taka á móti upplýsingum frá fólki og taka við umsögnum og upplýsingum frá gestum. Síðan var auðvitað verið að vinna í því að takast á að einhverju leyti um hvað það væri sem við þyrftum að ávarpa í þessu nefndaráliti.

Hv. þingmaður nefnir athugasemdir fjármálaráðs. Ég held að ég sé búinn að tæma mig um það hvað ég get raunverulega sagt um það. Það má vissulega taka undir það, það hefði mátt ávarpa margt af því sem frá fjármálaráði kom betur í nefndarálitinu. Engu að síður er niðurstaðan auðvitað þetta nefndarálit. (Forseti hringir.) En hagvaxtarspáin — ég vil bara ítreka að það hefði þá kannski verið breyting á vinnulagi (Forseti hringir.) vegna þess að það lá fyrir að fjármálaáætlun yrði ekki uppreiknuð. Það lá fyrir þegar fjármálaáætlun var lögð fram.