157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:28]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég ætla að byrja á að segja að ég er þingræðissinni, mér finnst að þingið eigi að ráða. Þingið hefur fjárlagavaldið, ekki ráðherrann. Ráðherrann kemur hér inn í þingið með fjármálaáætlun. Þó að það standi, ég veit ekki, á bls. 33 eða hvar sem það er í fjármálaáætluninni að þeir ætli ekki að uppreikna þótt það komi ný spá þá er ekki þar með sagt að þingið eigi bara að sitja og bugta sig fyrir því. Þannig að mín spurning er í rauninni: Bað fjárlaganefnd um uppreikning á því hvaða áhrif þessi nýja spá hefði á fjármálaáætlunina? Bað hún um það að annaðhvort ráðuneytið eða sérfræðingar þingsins færu í þessa uppreikninga? Fenguð þið þá einhver svör um hvað var áætlað að það tæki langan tíma eða yrði flókið og mikið verkefni?