157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:29]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar síðara andsvar. Það lá auðvitað fyrir að þetta gæti tekið allt að tveimur vikum og það er alveg hægt að taka undir að það hefði verið hægt að biðja um það. Ég tek undir með hv. þingmanni að auðvitað hefði framkvæmdarvaldið átt að láta okkur hafa uppreikninga, hefðum við beðið um þá, en það var ekki beðið um þá, ég get staðfest það. Við gerðum ekki kröfu um það og það var raunverulega á þeim grunni að fjármálaáætlun byggðist raunverulega á mörgum forsendum og það að hreyfa til fáeina parametra eins og fram hafði komið í spánni væri ekki ástæða til að fá uppreikning. Þetta orkar auðvitað alltaf tvímælis, ég get alveg tekið undir það. En þetta var niðurstaða meiri hlutans.