fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég ætla að fá að þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir hans ræðu og fyrir að vera hér í þingsal, einn stjórnarliða og ég verð að lýsa furðu með það hversu lítil viðvera og þátttaka er frá stjórnarliðum í þessari mikilvægu umræðu. Við erum bara búin að ræða fjármálaáætlun í örfáar klukkustundir í dag. Það er ekki eins og þessi umræða sé orðin löng, ég er hér í fyrstu ræðu minni um fjármálaáætlun. Það er óeðlilegt, þegar við ræðum slíkt plagg, að fólk sé ekki hér til staðar og taki ekki þátt í þessari mikilvægu umræðu.
Ég ætla að byrja þar sem við enduðum hér, í andsvörum mínum og svörum frá hv. þm. Grími Grímssyni, það að ráðuneytið ákveði að það ætli ekki að uppfæra fjármálaáætlun þegar ný spá kemur finnst mér ákveðið aukaatriði en það að meiri hluti fjárlaganefndar ákveði að biðja ekki um það (Gripið fram í.) er í mínum huga ámælisvert. Hv. þingmaður sagði áðan að það væri metið þannig að það gæti tekið allt að tvær vikur að uppfæra áætlunina. Það eru um þrjár vikur síðan spá Seðlabankans kom fram þannig að að sjálfsögðu hefði fjárlaganefnd getað beðið um þetta og reyndar, virðulegur forseti, ætla ég að halda þeirri kenningu fram að fjármálaráðuneytið sé búið að reikna þetta. Það er ekkert rosalega flókið. Þau vita alveg hver áhrifin eru á þessa fjármálaáætlun og áhrifin eru þau að allar forsendur eru brostnar. Það er ekki hægt að láta dæmið ganga upp öðruvísi en að fara í gagngerar viðbætur sem verða að öllum líkindum skattahækkanir. Það er það sem liggur fyrir.
Virðulegur forseti. Ég sagði það í fundarstjórn fyrr í dag að mér fyndist eðlilegast að þetta mál yrði tekið af dagskrá. Það eru ekki í mínum huga forsendur til að ræða þetta mál með þeim viðbrögðum sem við höfum hér í nefndaráliti meiri hlutans. Í ljósi þess að þau hafa enn ekki treyst því að uppfæra áætlunina þá hef ég lagt það til að við frestum þessari umræðu og tökum hana upp á væntanlegum þingstubbi í ágúst. Við í stjórnarandstöðunni, alla vega í Sjálfstæðisflokknum, höfum farið fram á að við komum hér saman í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu þannig að við getum spurt spurninga og ráðherrar séu hér til svara. Þá væri leikur einn að klára síðari umræðu um þessa fjármálaáætlun því þá geri ég ráð fyrir því að ráðuneytið hefði haft nægan tíma til að uppreikna hana í samræmi við spá Seðlabankans.
Virðulegur forseti. Það var alvarlegt það álit sem fjármálaráð lagði fram og sendi fjárlaganefnd og ég veit að þau komu á fund fjárlaganefndar og fóru yfir það. Mig langar að grípa niður í álit fjármálaráðs, helstu ábendingar þess og ályktanir, með leyfi forseta. Þar segir:
„Vísitölutenging almannatrygginga ógnar sjálfbærni opinberra fjármála. […] Fjármálaráð telur þetta áhættusama stefnumótun sem getur haft víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar fyrir sjálfbærni og festu opinberra fjármála.“
Við tókumst á um þetta þegar þetta almannatryggingafrumvarp fór í gegn og þetta er eitthvað sem stjórnarmeirihlutinn hefur ákveðið að virða að vettugi, segir bara: Þrátt fyrir afstöðu þessa óháðu sérfræðinga sem sitja í fjármálaráði þá erum við ekki sammála því. Þau bara neita því.
Virðulegur forseti. Hér segir líka, og nú er ég bara að grípa niður á ákveðnum stöðum, með leyfi forseta: „Framkvæmd stöðugleikareglu er ógagnsæ og óljóst er hvernig hún eigi að stuðla að jafnvægi í afkomu.“ Þetta er eitt af því sem hæstv. fjármálaráðherra hefur hreykt sér af, stöðugleikareglan. Svo segir hér, með leyfi forseta:
„Óútfærðar afkomubætandi aðgerðir draga úr trúverðugleika. Fjallað er um óútfærðar afkomubætandi aðgerðir í framlagðri áætlun. Nefnt er að fækka skuli ríkisstarfsmönnum og að farið verði í aðrar sértækar hagræðingaraðgerðir án þess að nokkuð sé fjallað um framkvæmdina. Slíkt er ógagnsætt og ótrúverðugt“
Ég hef ekki séð að það sé útfært eða ávarpað með einhverjum öðrum hætti í nefndaráliti meiri hlutans. Þá segir, með leyfi forseta:
„Verðbólguvæntingar eru enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi. Þau skilaboð sem fjármálaáætlanir stjórnvalda senda ráða miklu um verðbólguvæntingar heimila og fyrirtækja. Rannsóknir sýna að aðgerðir í ríkisfjármálum hafa mjög sterk og fljótvirk áhrif á verðbólguvæntingar. “
Virðulegur forseti. Í rauninni gerðist það við síðustu fjármálaáætlun, sem var þá fyrsta fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar, að vaxtalækkunarferlið, sem hafið var í tíð síðustu ríkisstjórnar, stöðvaðist. Vaxtalækkunarferlið var hafið og það hélt áfram eftir kosningar en um leið og þessi ríkisstjórn sýndi á spilin með sinni fjármálaáætlun þá stöðvaðist vaxtalækkunarferlið. Og hvað hefur gerst síðan þá? Við höfum ekki bara fengið eina stýrivaxtahækkun, við höfum fengið tvær stýrivaxtahækkanir, allt eftir að þessi ríkisstjórn sýndi sitt plan. Ég ætla að spá því að við fáum enn aðra í ágúst.
Virðulegur forseti. Hér segir líka: „Tilhneiging til víðtækra aðgerða við sértækum vanda grefur undan skilvirkni og sjálfbærni.“ Í því sambandi er talað um vísitölutengingu í almannatryggingakerfinu:
„Markmið aðgerðarinnar er að bregðast við stöðu tiltekinna hópa, en útfærslan felur í sér víðtæka og sjálfvirka breytingu á kerfi sem hefur áhrif á stóran hluta opinberra útgjalda. Betur færi á því að beita markvissari og sértækari aðgerðum sem beinast að þeim hópum sem raunverulega þurfa á stuðningi að halda. Slíkt er líklegra til að skila tilætluðum árangri með minni kostnaði og minni áhrifum á heildareftirspurn og verðbólgu.“
Virðulegur forseti. Ég held hér áfram:
„Lækkun skuldahlutfalls byggir á bjartsýnum forsendum um hagvöxt. […] Lánsfjárjöfnuður er áætlaður neikvæður til ársins 2031 sem þýðir að lántökur verða umfram afborganir út allt tímabil áætlunarinnar. Það er áhyggjuefni að sú lækkun skuldahlutfallsins sem boðuð er í áætluninni eigi að mestu leyti að vera drifin áfram af hagvexti, sér í lagi þar sem hagvaxtarhorfur nú eru undirorpnar mikilli óvissu.“
Virðulegur forseti. Hvað hefur gerst síðan fjármálaráð skilaði þessari umsögn sinni? Hagvaxtarhorfur hafa versnað enn frekar þannig að það er alveg ljóst hvað varðar lánsfjárjöfnuð og áhrifin á skuldahlutfallið að þar erum við í verri málum. Þess vegna er mikilvægt að áætlunin sé uppreiknuð.
Virðulegur forseti. Svo er líka talað um að afkomubati sé hægfara og háður mikilli óvissu. Svo segir: „Varhugavert er að treysta á hagfelldar efnahagsforsendur.“ Og hvað er að gerast nú? Efnahagsforsendur eru bara langt frá því að vera hagfelldar. Svo segir hér að lokum: „Skortur á gagnsæi um forsendur launa- og verðlagsþróunar dregur úr trúverðugleika.“ Fyrirgefið, þetta var ekki alveg að lokum því að ég ætlaði líka að fjalla hér um að í einum punktinum segir: „Mikil og falin áhætta getur verið fólgin í stofnun innviðafélags.“ Við lukum einmitt umræðu um það fyrr í dag.
Virðulegur forseti. Þetta voru helstu áhyggjur og ábendingar frá fjármálaráði og fjármálaráð er, að ég tel, hluti af grunninum í kringum lög um opinber fjármál. Ríkisstjórnin sendir frá sér fjármálastefnu í upphafi kjörtímabilsins þar sem svona stóra myndin er máluð. Á hverju ári á okkur svo að birtast fjármálaáætlun og til þess að gæta sanngirni og fagmennsku þá höfum við fjármálaráð, þar sem sitja óháðir sérfræðingar sem hafa það verkefni að rýna bæði stefnuna og áætlunina. Hvernig er brugðist við þessum ábendingum frá fjármálaráði í áliti hv. meiri hluta fjárlaganefndar? Maður myndi ætla að þar væri brugðist við. Það væri annaðhvort gripið til einhverra aðgerða eða útskýrt af hverju það væri ekki gert. En það stendur ekkert um það í þessu meirihlutaáliti. Hv. þm. Grímur Grímsson svaraði því heiðarlega til hér áðan að kannski hefði farið betur á því að gera það í nefndarálitinu en það var ekki gert. Það er að mínu viti ámælisvert.
Virðulegur forseti. Fjármálaáætlun á að vera stefnumarkandi plagg. Hún á að sýna hvert ríkisstjórnin ætlar að fara með ríkisfjármálin næstu fimm ár en þessi áætlun gerir það einfaldlega ekki. Hún horfir fram hjá hinu augljósa, að forsendurnar eru brostnar, verðbólgan er þrálát, vaxtalækkanir hafa tafist, atvinnuleysi er að aukast og hallinn er meiri en áður var gert ráð fyrir. Meiri hlutinn viðurkennir sjálfur í nefndarálitinu að forsendurnar hafi breyst en ætlar samt ekki að breyta neinu og, virðulegur forseti, ég verð bara að gera verulegar athugasemdir við það að hann telji að slík hegðun geti verið í samræmi við lög um opinber fjármál. Ég ítreka að fjármálaáætlun á að vera stefnumarkandi plagg og hún á að byggja á traustum grunni. Hún gerir það auðvitað ekki ef forsendurnar eru brostnar.
En af því að tíminn líður hratt þá langar mig líka að drepa á nokkur atriði sem ég ítreka aftur að ég hefði ekki viljað gera það því mér finnst þessi fjármálaáætlun ekki vera tæk til almennrar umræðu, síðari umræðu í þingsal. Hún er einfaldlega ekki tilbúin. En ég ætla að grípa hér niður í málaflokki sem er mér sérstaklega kær, menntamálin. Ég hef nú haldið hér ræður um það og ég tel menntamál einn af allra mikilvægustu málaflokkunum. Hér segir í fjármálaáætluninni, með leyfi forseta:
„Ríkisstjórnin setur málefni barna og ungmenna í öndvegi og hefur boðað sókn í menntamálum með áherslu á bætt umhverfi nemenda og kennara, íslenskukennslu, læsi og aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum, stuðning við menntakerfið, inngildingu, snemmtæka íhlutun, starfsþróun og raunfærnimat.“
Þetta eru ofboðslega falleg orð á blaði, virðulegur forseti, en það er ekkert í þessari fjármálaáætlun sem ýtir undir að þetta geti gerst. Ekki hafa ráðherrar þessa málaflokks — ég get ekki sagt ráðherra, það eru ráðherrar, þeir eru í fleirtölu — komið fram með frumvörp sem gera þetta að veruleika, alls ekki. Ég ætla að nefna sérstaklega námsgögnin sem hér voru nefnd, við vorum með frumvarp um námsgögn í fyrra, á síðasta þingi, en þau mál hafa ekki ratað inn í þingið aftur, þau náðu ekki fram að ganga þá. Það er kallað eftir nýjum námsgögnum. Það er kallað eftir stefnu. Það er kallað eftir auknu fjármagni í námsgögn en ég sé lítið sem ekkert um það hér, enda segir hérna að það sé gert ráð fyrir að útgjaldarammi málefnasviðsins lækki á tímabili áætlunarinnar þegar tímabundnar fjárveitingar falli niður. Þannig að hér er ekkert sem kemur til móts við þessi fallegu orð um að ríkisstjórnin setji málefni barna og ungmenna í öndvegi. Það er bara ekkert um það.
Þá gætum við farið á næsta skólastig sem er þá framhaldsskólastigið. Hvað er að gerast þar? Með leyfi forseta, þá segir hér að lögð sé til aukafjárveiting í framhaldsskólana árið 2027 sem nemur 1,7 milljörðum kr. Við skulum fylgjast með því hvort það skili sér í fjárlögum næsta árs. Það á að vera til að mæta nemendafjölgun sem er umtalsverð og til að styrkja frekar iðn-, verk- og starfsnám. En þegar frá líður 2027 þá dragast framlög til framhaldsskólanna saman, enda er harðorð yfirlýsing og umsögn frá Félagi framhaldsskólakennara um þann samdrátt sem á sér stað á því sviði. Mig minnir að hann sé um 7%, ef ég man rétt. Engu að síður er hér áætlað fjármagn í uppbyggingu verknámshúsa sem er mikil þörf á og ég held að það sé full ástæða til að hafa áhyggjur af því að þau framlög sem hér eru tilgreind í það muni ekki skila sér að fullu og nægi ekki fyrir þeirri uppbyggingu sem þarf að fara í. En hér eru nefndir, sérstaklega Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra og Menntaskólinn á Ísafirði, þannig að það er eins gott að við fylgjumst vel með því í þessum lið eru bara falleg orð á blaði en fjármagnið virðist ekki fylgja.
Virðulegur forseti. Mig langar líka að nefna nýsköpunarmálin. Það er annar málaflokkur sem ég horfi gjarnan á í þessum fjármálaáætlunum. Hér segir, með leyfi forseta: „Fjármagn sem samfélagið ver í rannsóknir og þróun nemi 3,5% af vergri landsframleiðslu á árinu 2035 …“ Þetta er sem sagt markmið sem stjórnvöld hafa sett sér og þetta á ekki bara við um opinber fjárframlög til rannsókna og nýsköpunar og, virðulegur forseti, þetta markmið um 3,5% af vergri landsframleiðslu er markmið sem sett var, ég veit ekki, fyrir 15 eða 20 árum þegar ég starfaði í stuðningsumhverfi nýsköpunar. Núna er markið sett svo hátt að það er stefnt að því árið 2035. Þá ætlum við að ná þessu, 2035. Metnaðarleysið í þessu markmiði er algjört enda er hér verið að draga úr fjárframlögum til nýsköpunar, rannsókna- og þekkingargreina. Það var dregið úr þeim í síðustu fjárlögum fyrir þetta ár, árið 2026. Þá var samdráttur töluverður, þetta eru 3,4 milljarðar. Á næsta ári á aftur að draga örlítið meira saman og aftur árið 2028, og svo seinna, þegar næsta ríkisstjórn tekur við, á samkvæmt áætluninni aftur að fara að gefa í þessum mikilvæga málaflokki. Engu að síður er auðvitað talað á tyllidögum um mikilvægi nýsköpunar og mikilvægi þess að þetta nái fram að ganga. En því miður hefur ekkert sýnt sig, hvorki í fjárlögum né fjármálaáætlun, um að það sé einhver raunverulegur vilji hjá þessari ríkisstjórn til að ýta undir nýsköpunarumhverfið. Við sjáum að fyrirtæki í þessum geira kvarta hástöfum yfir því að umsóknum til Rannís sé svarað illa og fyrirsjáanleiki þeirra sem vanir eru eða hafa verið í því að fá endurgreiddan kostnað vegna rannsókna og þróunar er orðinn enginn. Ríkisstjórnin er að setja nýsköpunarfyrirtæki í þessu landi í verulegar kröggur þar sem fyrirsjáanleika vantar.
Nú ætla ég bara að ítreka það, virðulegur forseti, að hér á Íslandi höfum við byggt upp alveg einstaklega gott umhverfi í kringum nýsköpun og við höfum séð fjölda nýsköpunarfyrirtækja verða til á Íslandi. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að það sé meiri nýsköpunar- og frumkvöðlamáttur á Íslandi heldur en víða annars staðar og í löndum sem við berum okkur saman við, sérstaklega ef horft er til Evrópu. Þegar fólk fer að tala um tækifæri í Evrópusambandinu þá vil ég nú ýta því til hliðar og ég segi: Það hafa verið tækifæri fólgin í því fyrir Ísland að vera hluti af Evrópska efnahagssvæðinu en ekki í Evrópusambandinu og byggja upp það stuðningsumhverfi sem við höfum gert í kringum nýsköpun og þannig hefur orðið til alveg fjöldinn allur af öflugum nýsköpunarfyrirtækjum hér á Íslandi. En, virðulegur forseti, því miður er hægt að hafa áhyggjur af þeim geira og uppbyggingu hans miðað við þessa fjármálaáætlun og stefnu þessarar ríkisstjórnar.
Að lokum, virðulegur forseti, ítreka ég enn og aftur þá afstöðu mína að þessari umræðu verði bara hætt í bili, fjárlaganefnd taki raunverulega völdin til sín og krefjist þess að fjármálaáætlun verði reiknuð upp. Það er eðlilegt að þingmenn geri þá kröfu til ráðuneytisins, ég reyndar held að ráðuneytið sé nú þegar búið að gera það, þau þori bara ekki að koma fram með það vegna þess að þau eru ekki búin að átta sig á því hvernig þau eigi að loka gatinu. En þetta er ekkert lítið. Það hefur aðeins verið gert lítið úr þessu hér í umræðunni, eins og það sé svona minni háttar atriði að hagvöxtur sé að dragast saman, að atvinnuleysi sé að aukast. Þetta hefur veruleg áhrif á ríkisfjármálin. Svo hefur verið nefnt að hér lá frumvarp fyrir þinginu um að fækka atvinnuleysismánuðum eða minnka réttinn til atvinnuleysisbótaþátttöku sem var aðlagað hér í þinginu og gengið ekki jafn hart fram. Það hefur auðvitað áhrif líka inn í þessa útreikninga varðandi ríkisútgjöldin. En stóra málið er auðvitað það, virðulegur forseti, að hér tók við ríkisstjórn sem lofaði því að kveða niður verðbólguna og ná niður stýrivöxtunum. Það sem hefur gerst í tíð þessarar ríkisstjórnar er að vaxtalækkunarferli Seðlabankans var fyrst stöðvað og nú er hækkunarferli hafið að nýju. Enginn árangur er að nást í því að berjast við verðbólguna en það sem er að gerast í ofanálag er að atvinnuleysi er að aukast. Þetta er ekki björt mynd og mér finnst að þingheimur allur ætti að sameinast um aðgerðir til að bregðast við þessari alvarlegu stöðu sem upp er komin í íslensku efnahagslífi. Til þess að gera það þá þurfum við réttar og góðar upplýsingar og það er ekki það sem liggur fyrir í þessari fjármálaáætlun hér. Hana þarf að leiðrétta og hana þarf að reikna upp að nýju.