fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Við í stjórnarandstöðunni ræðum fjármálaáætlun því að við sáum mjög hratt undir iljarnar á stjórnarliðum í þessari umræðu og í sjálfu sér er hægt að hafa skilning á því. Þessi ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins mætti á vettvang með miklum bægslagangi, stóryrtum yfirlýsingum og miklum kosningaloforðum. Það átti hvorki meira né minna en að lemja vextina niður með sleggju og síðan var það plan til bættra lífskjara sem átti að skila árangri strax. Ríkisstjórnin hefur verið við völd í eitt og hálft ár og ekkert af því sem hún lofaði hefur gengið eftir þegar kemur að efnahagsmálum, bara nákvæmlega ekki neitt. Hún tók við góðu búi en við vorum fyrst núna, ég held að það hafi verið í gær, að fá svar við spurningu sem við bárum fram í lok síðasta árs. Við vildum fá endanlega niðurstöðu hvað varðar auknar tekjur á árinu 2025. Hallinn var áætlaður 60 milljarðar kr. en síðan voru tekjurnar 83 milljörðum meiri. Með öðrum orðum var árið í jafnvægi, reyndar í einhverjum 20 milljörðum í plús, ef ekki hefðu komið til fern fjáraukalög hjá ríkisstjórninni. Fjáraukalög eru eitthvað sem menn hafa viljað losna við úr ríkisfjármálunum en þau eru þarna inni vegna þess að þau eiga að mæta óvæntum og ófyrirséðum atburðum. Í þessum fernum fjáraukalögum var öllu milli himins og jarðar hent inn til þess eins að geta sýnt fram á að það væri halli á árinu 2025, þannig að í áróðursstríði ríkisstjórnarinnar gætu menn bent á að það hefði verið halli þegar þeir tóku við. Það var ekki halli en menn bjuggu til halla, sem verður halli út af þessum fjáraukalögum. Umræðum um fjáraukalög síðustu ríkisstjórnar, á síðasta ári, er ekki lokið.
Hvað sem því líður þá ræðum við hér fjármálaáætlun. Þessi ríkisstjórn er að koma sér í sögubækurnar vegna þess að hún er eina ríkisstjórnin frá því að lög um opinber fjármál voru sett — það var algjör samstaða um þau lög. Allir flokkar sögðu: Heyrðu, við eigum okkar þátt í þessum lögum. Það er ekki bara ríkisstjórnin, sem þá var, sem á þessi lög, við komum að þessu á fyrri stigum. Þetta hefur verið í undirbúningi í tíu ár. Það voru allir flokkar sem vildu eigna sér einhvern hluta af lagabálkinum vegna þess að hann hafði það að markmiði að ná betri tökum á opinberum fjármálum, vinna hlutina betur, vanda til verka með traustum og öflugum upplýsingum, bestu upplýsingum á hverjum tíma, og það var litið til nágrannalandanna sem hafa getið sér gott orð á þessu sviði. Þessi ríkisstjórn byrjaði á því að brjóta lög um opinber fjármál. Það á að koma með fjármálastefnu sem á að draga upp stóru myndina og hún er sett fram í upphafi kjörtímabils. Það á að ræða fjármálastefnuna og samþykkja hana. Á grunni fjármálastefnunnar á að búa til fjármálaáætlun sem síðan fer í gegnum þingið og kemur á hverju ári og á grunni fjármálaáætlunar á að setja fram fjárlög. Þessi ríkisstjórn setti fjármálastefnu og fjármálaáætlun saman á sama tíma þannig að það er fræðilega ómögulegt að byrja á að klára að ræða fjármálaáætlun og samþykkja hana og byggja síðan fjármálaáætlun á fjármálastefnunni. Það gat ekki gengið upp.
En þetta var ekki nóg því núna, virðulegi forseti, og þá í fyrsta skipti, uppreiknar ríkisstjórnarmeirihlutinn ekki fjármálaáætlunina. Til hvers er ég þá að vísa, bara svona á mannamáli? Þá gera menn áætlun til fimm ára og leggja hana fram á hverju einasta ári og það var gert. Síðan fer málið í þinglega meðferð. Fyrst kemur fjármálaráð, sem er faglegt ráð sem er skipað sérfræðingum sem eiga að rýna þetta, og kemur með sitt sjónarhorn. Fjármálaráð kom núna með mjög alvarlegar athugasemdir, 15 athugasemdir, eina jákvæða og 14 mjög alvarlegar. Síðan koma umsagnaraðilar sem segja sína skoðun. En í millitíðinni kemur ný spá og það er auðvitað eitthvað sem fyrri ríkisstjórnir og fyrri fjárlaganefndir hafa þá bara tekið og sagt: Heyrðu, allt í lagi, við vorum með þessa spá. Er einhver breyting sem skiptir máli? Og ef svo er þá laga menn fjármálaáætlunina að þeim breytingum. Þessi ríkisstjórn sér að það stefnir í verri átt. Það liggur alveg fyrir að atvinnuleysi verður meira, hagvöxturinn verður minni og síðan hafa menn ekki náð þeim sparnaði út úr ákveðnum lagabálki um styttingu atvinnuleysisbóta sem þeir ætluðu í meðförum þingsins. En menn segja bara: Heyrðu, við ætlum ekkert að breyta þessu. Við ætlum ekki að uppfæra spána. Og svo er sagt að ríkisstjórnin hafi sett þetta fram á bls. 35 í einhverri greinargerð að hún ætlaði að vinna þetta svona.
Virðulegur forseti. Þetta er ekki í samræmi við lög um opinber fjármál og það er með ólíkindum að sjá þessi vinnubrögð hjá ríkisstjórninni. Þetta er ofan á það að ekkert er gert með athugasemdir fjármálaráðs. Ég las það upp í fyrri ræðu minni, þetta eru 15 athugasemdir sem fjármálaráð dregur sérstaklega út, mjög alvarlegar athugasemdir, sem nefndarálit meiri hlutans hefði átt að ganga út á að svara. Fjármálaráð er skipað sérfræðingum sem hafa það eina markmið að koma með faglegt álit á fjármálaáætlun. Það sem fjármálaráð er að segja er: Heyrðu, það er bara gríðarlega mikið af göllum hérna sem gera það að verkum að fjármálaáætlunin er ekki að ná þeim markmiðum sem hún á að ná, hvorki þegar kemur að niðurgreiðslu skulda, alls ekki þegar kemur að því að slá á verðbólguvæntingar og þar af leiðandi að vinna gegn háum vöxtum. Fjármálaáætlun er bara ekki að ná þessum markmiðum. Og meiri hluti hv. fjárlaganefndar gerir bara ekkert með þetta. Ég vek athygli á því að stjórnarliðar hafa ekkert tekið þátt í umræðunni svo heitið geti, ekki neitt. Af hverju er það? Ég hef verið hinum megin við borðið og maður fór stoltur í umræðu um fjárlög og fjármálaáætlun þegar maður var í ríkisstjórnarmeirihluta. En stjórnarliðar láta ekki sjá sig. Þeir þora ekki í umræðuna. Þeir hafa engin svör. Ég skal þó taka fram að ég vil sérstaklega hrósa hv. þm. Grími Grímssyni vegna þess að hann kom alla vega hér og var einlægur í sinni umræðu. Ég er í sjálfu sér ekki að kvarta undan hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni og hv. þm. Degi B. Eggertssyni, en mér finnst skrýtið að þeir séu ekki hér enn þá, formaður og varaformaður hv. fjárlaganefndar. Það gætu verið persónulegar ástæður fyrir því og ef svo er þá biðst ég velvirðingar á því að vera að taka það sérstaklega upp. En það er enginn stjórnarliði hér í salnum. Það er enginn stjórnarliði að taka þátt í þessari umræðu. Það segir allt sem segja þarf. Rök stjórnarliða, sem þeir fá send frá fjármálaráðuneytinu, um að það taki tvær til þrjár vikur að uppreikna fjármálaáætlunina, ganga ekki upp. Gefum okkur að það sé rétt en ef það hefði verið vilji til að uppreikna hana værum við með uppreikninginn núna vegna þess að það eru í það minnsta þrjár vikur frá því að ný spá kom fram; ég held að vísu að þetta taki skemmri tíma. En við höfum opnað á það að koma saman í haust, í ágúst. Það er svolítið skrýtið, þegar ríkisstjórnin er að reyna að koma okkur inn í Evrópusambandið, að hún vilji ekki koma hingað og taka þá umræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Komum saman og klárum þessa fjármálaáætlun, klárum líka innviðafélag sem sérstaklega er varað við í álitsgerð fjármálaráðs og er augljóslega vanbúið og ekki tilbúið. Gerum það. Þar er mörgum spurningum er líka ósvarað. Það er eitthvað sem stjórnarandstaðan hefur boðið stjórnarliðum upp á en ekki virðist vera áhugi á því.
Ég vek bara athygli á því að það er ekki bara stjórnarandstaðan sem er að vara við þessari fjármálaáætlun. Það sama á við um fjármálaráð og Seðlabankann og síðan er það þannig að allir þeir umsagnaraðilar sem komu fyrir nefndina tóku meira og minna undir áhyggjur fjármálaráðs. Ég vek líka athygli á því, virðulegi forseti, að það er algjör nýlunda hjá ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins að veita hv. þingmönnum ekki þær upplýsingar sem þeir eiga rétt á, bara upplýsingar sem augljóslega þurfa að koma fram til að hv. þingmenn geti unnið vinnuna sína. Ég vek athygli á því að það eru fleiri mánuðir síðan, það var á síðasta ári, við báðum fyrst um áætlun varðandi varnartengd útgjöld og ríkisstjórnin ætlar bara ekki að svara því. Við viljum bara fá það sundurliðað hvernig þessi varnartengdu útgjöld, sem menn ætla að ná upp í 1,5%, sem er tæplega 80 milljarðar kr. á ári, munu skiptast. Stjórnarandstaðan hefur tekið upp þær óskir mínar á hverjum einasta fundi, held ég, frá því að þessi beiðni kom fyrst fram. Svarið kom nú í síðustu viku. Ríkisstjórnin ætlar bara ekki að láta okkur hafa þetta. Hvernig eigum við að ræða varnartengd útgjöld ef við fáum ekki að vita hver varnartengdu útgjöldin eru? Hvernig eigum við að gera það? Síðan er það þannig, virðulegi forseti, að í áróðursefni ríkisstjórnarinnar er ákveðin útlistun á því hvernig hvert fjárlagaár hefur endað, þ.e. í halla eða í plús. Það er allt í lagi nema það er ekki í samræmi við ríkisreikning. Ríkisreikningur er eins og ársreikningur fyrirtækja og ég myndi ætla að við ættum að geta treyst ríkisreikningi. En tölurnar eru ekki þær sömu í ríkisreikningnum og í áróðursefni ríkisstjórnarinnar. Við spurðum: Bíddu, við viljum fá skýringar á því hvers vegna þetta er ekki eins, en við fáum ekki svör. Við fáum ekki svör og svarið varðandi tekjurnar 2025 var að koma í gær frekar en í fyrradag um að tekjurnar væru 83 milljörðum meiri en áætlað var en gert væri ráð fyrir 60 milljarða halla. Miðað við þær tölur, ef öll fjáraukalögin frá hæstv. ríkisstjórn hefðu ekki komið til, hefði það ár að öllu óbreyttu verið í jafnvægi og jafnvel í plús. Verra var það nú ekki það sem ríkisstjórnin tók við. Hún tók við góðri stöðu í ríkisfjármálum, öfundsverðri stöðu í ríkisfjármálum, en því miður hefur ekkert af því sem lagt var upp með gengið eftir.
Ef einhver trúir mér ekki þá ætla ég, með leyfi forseta, að lesa hér frétt þar sem hæstv. fjármálaráðherra kemur við sögu. Þetta kemur af Vísi.is. Þar segir:
„Fjármálaráðherra segir óhjákvæmilegt að atvinnuleysi aukist vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar sem snúa að því að ná tökum á þensluverðbólgu. Hann viðurkennir að betur mætti ganga í efnahagsmálum.
Þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við í árslok 2024 voru vextir byrjaðir að lækka en í dag fara vextir hækkandi. Erfiðlega gengur að ná tökum á verðbólgunni, atvinnuleysi eykst og fréttir voru fluttar af fjöldauppsögnum í maí. Kjarasamningar losna mögulega í haust og óvíst hvort að boðuð hallalaus fjárlög á næsta ári gangi eftir. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra fór yfir stöðuna í efnahagsmálum á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.“
Hann er spurður: „Þú vonaðir kannski að við værum á betri stað?“ Og fjármálaráðherra svarar: „Já, þetta hljómar ekki vel þegar þú ferð yfir þetta eina og hálfa ár. Það er alls ekki eins og ég sé starfi mínu vaxinn en þetta er alveg rétt hjá þér. Þetta er staðan,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra.“