157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:07]
Horfa

Árni Helgason (S):

Frú forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Ég vil nú kannski biðja virðulegan forseta að virða það við mig að ég er hálfrámur og hás; ég hef verið að glíma við flensu síðustu daga en við látum okkur hafa það — sem er kannski ein leið til að lýsa nálgun meiri hlutans á þessa ágætu fjármálaáætlun. Það er ekki allt eins og það á að vera en menn ætla að láta sig hafa það. Þó að forsendur séu augljóslega ekki fyrir hendi lengur, augljóslega eru breytingar til hins verra, hefur það komið mjög skýrt fram í umræðunni það sem af er að ekki stendur til að hreyfa eitt né neitt við þessu.

Mig langar að því sögðu, virðulegur forseti, aðeins að fá að rifja upp söguna í þessum efnum og í þessum málaflokki undanfarin misseri. Ef við förum aftur til þess tíma þegar síðustu þingkosningar fóru fram í nóvember 2024 er fróðlegt að rifja aðeins upp og setja í samhengi þær umræður og þau sjónarmið sem þá voru uppi. Þáverandi ríkisstjórn, sem var ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, hafði þá setið í sjö ár og fengið í fangið mjög stór og þung verkefni. Ég held að það sé óumdeilt, hvaða eftirmæli sem menn vilja gefa þeirri stjórn, að hún glímdi við afskaplega þung verkefni á sínum tíma. Það má auðvitað tína til ýmiss konar áföll framan af; það var fall WOW air og svo kom auðvitað Covid-faraldurinn og þegar við loksins komumst út úr faraldrinum urðu miklar jarðhræringar og jarðeldar á Suðurnesjum. Ríkisstjórnin fékk það verkefni í fangið að leysa málefni Grindavíkur og á endanum varð úr að nánast allar fasteignir í bæjarfélaginu voru keyptar af ríkinu. Enn annað stórt verkefni sem þessi ríkisstjórn, þ.e. sú sem sat hér 2017–2024, glímdi við voru kjarasamningar sem voru kláraðir árið 2024 og útheimti mikla aðkomu ríkissjóðs, kannski meira en góðu hófi gegndi en við förum kannski ekki ofan í það hér. En til að taka þetta svona saman á einfaldan hátt þá held ég að það sé sanngjarnt að segja að þessi ríkisstjórn hafi tekist á við mjög erfiðar ytri aðstæður og þetta reyndist auðvitað afskaplega kostnaðarsamt. Það er umfjöllun í fjármálaáætlun um þetta og þar kemur fram að áætlaður kostnaður af þessum sökum, ég held að þar sé verið að horfa til uppkaupa í Grindavík og faraldursins, hafi verið 400 milljarðar kr. Þetta er metið sem hinn opinberi kostnaður.

Það er kannski allt í lagi að halda því til haga að þáverandi stjórnarandstöðuflokkar, sem eru auðvitað núverandi ríkisstjórnarflokkar, voru nú býsna sammála þessari pólitísku stefnumörkun á sínum tíma. Það voru ekki gerðar við hana stórar athugasemdir, þvert á móti var málflutningur forystu stjórnarandstöðunnar á þeim tíma yfirleitt frekar á þá leið að það þyrfti að gefa enn meira í, hafa framlögin enn hærri. Að vísu kannast menn ekkert mikið við þetta í dag og nú er narratífið á þá leið að þetta hafi allt saman verið einhver efnahagsleg óstjórn og kyrrstaða. En eins og þekkt er má segja að stefnan sem varð ofan á hafi verið sú að beita opinberum fjármálum til að takast á við þessa krísu. Fyrirtækjum var haldið lifandi með framlögum, það var veitt mikið af styrkjum o.s.frv. Það má kannski segja að bæði Seðlabankinn og ríkissjóður hafi lagt þung lóð á þær vogarskálar. Seðlabankinn lækkaði vexti mjög hratt ofan í þessi miklu fjárframlög hins opinbera. Þegar við erum loksins að komast út úr faraldrinum 2022 verður mikill hvellur á alþjóðavísu þegar Rússar ráðast inn í Úkraínu og það verður mikið hökt á alls konar vörukeðjum og fleira í hinu alþjóðlega umhverfi. Úr verður mikill verðþrýstingur sem við fundum fyrir eins og svo sem flest önnur lönd í Evrópu. Þetta leiddi af sér hærra verð á flutningi, hærra verð á olíu og hærra verð á innfluttum vörum. Saman einhvern veginn nær þetta að mynda það ástand sem við þekkjum. Það varð hér há verðbólga sem þurfti að takast á við með háum vöxtum.

Fyrri ríkisstjórn lagði á það mikla áherslu að reyna að haga málum þannig að unnt væri að ná niður verðbólgu og hefja vaxtalækkunarferli. Seinni hluta ársins 2024 vorum við komin á þann stað að það leit allt út fyrir að þetta væri að ganga eftir. Verðbólgan var farin að síga niður á við, stýrivextir voru farnir að lækka, það komu fimm vaxtalækkunarákvarðanir í röð um tíma og það kom skýrt fram af hálfu Seðlabankans að vaxtalækkunarferlið væri hafið. Það er á þessum tímapunkti, í nóvember 2024, sem er kosið. Kannski eðlilega sá þáverandi stjórnarandstaða sér leik á borði og gekk fram og sagði að það sem þyrfti til til að ná árangri í efnahagsmálum væri nýtt fólk í brúna; það þyrfti að ráðast í verkefnin, hætta kyrrstöðunni, fara í hlutina, negla niður vexti með sleggju og hafa plan. Það verður ekki annað sagt en að þessi pólitísku skilaboð hafi skilað sér. Flokkurinn fékk umboð kjósenda og, eins og allir þekkja, mynduð var ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar. Inngangsorð fyrstu setningar stjórnarsáttmálans taka akkúrat á þessu atriði. Þar segir, með leyfi forseta:

„Fyrsta verk er að ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta, með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins. Um leið mun ríkisstjórnin rjúfa kyrrstöðu og vinna að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífi.“

Þetta eru sannarlega stór orð og þarna setur ríkisstjórnin út dálítið stórar væntingar. „Styrk stjórn á fjármálum ríkisins“ segir þarna og eitt af fyrstu verkum stjórnarinnar var að óska eftir hagræðingartillögum frá almenningi. Og almenningur brást svo sannarlega við. Ríkisstjórninni voru sendar þúsundir tillagna og í kjölfarið á því var settur upp hópur sem átti að útfæra og yfirfara þessar tillögur og úr urðu 57 hagræðingartillögur. Það var ekki annað að skilja en að ríkisstjórnin ætlaði sér að bretta upp ermar og fara að takast á við kerfið sem er auðvitað eitthvað sem við þurfum alltaf að vera að gera, passa okkur á því að hlutirnir velti ekki áfram einhvern veginn af sjálfum sér. En núna þegar 18 mánuðir eru liðnir er fróðlegt að velta fyrir sér hvernig til hefur tekist. Ég ætla að leyfa mér að nefna það, virðulegi forseti, að ég sem þingmaður sendi fyrirspurn í kjölfar þess að þessar hagræðingartillögur voru kynntar á hvert og eitt ráðuneyti til að fylgja þessu eftir og forvitnast um hvernig gengi að ná fram þeim markmiðum sem að var stefnt með hagræðingartillögum. Ég er kominn á þann stað núna að ég hef fengið svör frá öllum ráðuneytunum og þau eru fróðleg, svo ekki sé meira sagt. Það er auðvitað mjög áberandi að það hefur nánast ekkert verið farið í að fylgja þessum tillögum eftir.

Ofan í þetta kemur mjög áhugaverð samantekt sem Viðskiptaráð vann núna á dögunum og þar eru þeir búnir að fara og telja tillögurnar og fara í eftirmálann af því hvernig hefur gengið að innleiða þær. Þeirra mat er að 5 af 57 tillögum hafi verið kláraðar og að 20 þeirra séu í vinnslu. Þetta lága hlutfall rímar ágætlega við þau svör sem mér bárust frá ráðherrum í hverjum og einum málaflokki. Þau eru áhugaverð og bera svolítið með sér að það hafi einhverjum starfsmanni í hverju og einu ráðuneyti verið falið það verkefni að finna eitthvað, skrapa saman einhverjum tölum, til að fóðra í þetta svar við spurninguna frá þessum blessaða þingmanni; eitthvað sem við getum sýnt fram á að hafi verið til lækkunar.

Þegar maður tekur þetta saman koma alls konar áhugaverðar tölur frá ráðuneytunum. Stærsta einstaka hagræðingaraðgerðin sem tínd var til og hefur verið farið í var á vettvangi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins þar sem kom fram að sparast hefðu 3 milljarðar við það að umsækjendum um alþjóðlega vernd hefði fækkað. Það kann út af fyrir sig að vera rétt, virðulegi forseti, en það blasir við að sú lækkun kemur ekki til vegna hagræðingaraðgerða heldur er það einfaldlega fækkun í hópi umsækjenda og þar með minni þörf á opinberum framlögum í tengslum við þjónustu o.s.frv. Í heilbrigðisráðuneytinu var gert ráð fyrir um 3,6 millj. kr. hagræðingu; 2 milljarða hagræðing á að nást í sérhæfðri sjúkrahúsþjónustu og 1.200 millj. kr. eru taldar undir liðnum óskipt framlag til reksturs sjúkrahúsa. Frá fjármálaráðuneytinu bárust þau svör að það væru um rúmir 2 milljarðar í hagræðingu, þar af 1.464 milljónir í hagræðingu í málaflokknum almennur varasjóður, en það komu að vísu engar skýringar fram á því hvernig sú hagræðing væri að fást. Hagræðing í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu nam 1,9 milljörðum en þar af voru 1.100 milljónir vegna endurgreiðslu í tengslum við kvikmyndagerð á Íslandi, sem ég held að sé annað dæmi um stærð sem er kannski meira fljótandi heldur en að það hafi verið hagrætt í málaflokknum o.s.frv.

Til að draga þetta hratt saman, virðulegi forseti, þá var afskaplega lítið að frétta af þessum hagræðingarmálum. Það var ekki farið í þá vinnu sem væntingar voru gefnar um, þ.e. að fara ofan í málaflokka, takast á við kerfið, taka alls konar erfiðar og snúnar ákvarðanir því að um það snýst þetta auðvitað. Þess í stað var farið í svona einhverja fljótandi liði, reynt að skrapa saman einhverjum tölum hér og þar, hælisumsóknir, almenni varasjóðurinn og þess háttar, og þessu er stillt fram sem hagræðingu. Þetta er auðvitað ekki boðlegt svar, virðulegur forseti, eða boðleg framsetning. En mér fannst þetta slá svolítið tóninn fyrir margt í efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar. Það átti í sjálfu sér ekkert að fara að takast á við málin heldur er miklu frekar farið í PR-aðgerðir, það er sagt að það eigi að hagræða en það er ekki gert í raun.

Á sama tíma fór svo ríkisstjórnin út í að hækka ríkisútgjöld á fjárlögum um 143 milljarða á milli ára sem er auðvitað mjög mikil hækkun. Ég hjó eftir því að hér í vetur var hæstv. forsætisráðherra spurð út í hverju sæti og hún útskýrði það þannig að það væri afskaplega mikill hluti ríkisútgjalda á einhvers konar sjálfvirkri hækkun; þetta væru laun og samningsbundnar hækkanir og vísitalan væri stór þáttur í þessu öllu. Auðvitað var hægt að sýna þeim ummælum ákveðinn skilning þó að það hafi auðvitað væntanlega allt saman legið fyrir fyrir fram. En það sem var óskiljanlegt er að ef þetta var sýn hæstv. forsætisráðherra hafi ríkisstjórnin á sama tíma verið að keyra í gegn afgreiðslu á bótafrumvarpinu svokallaða, sem við tókumst á um í vetur, sem vísitölutengdi einmitt bætur; hún setti með öðrum orðum enn stærri hluta ríkisútgjalda, einn stærsta útgjaldalið ríkisins, á sjálfstýringu. Þetta var gert þrátt fyrir að nánast allir sem tjáðu sig um málið, allir umsagnaraðilar og sérfræðingar, vöruðu mjög við því og töldu þetta vera mikinn óleik í baráttunni við verðbólguna. En á það var ekki hlustað heldur keyrt áfram; það varð einhvern veginn að klára málið.

Mig langar í þessu samhengi að vekja athygli á álitsgerð fjármálaráðs sem tjáði sig um þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun. Þar er þetta mál, þ.e. vísitölutenging bóta, gert að sérstöku umfjöllunarefni og tekið undir þau varnaðarorð sem sérfræðingar og umsagnaraðilar létu falla. Mig langar að vitna aðeins í álitsgerðina. Þar segir, með leyfi forseta:

„Samantekið telur fjármálaráð að sú breyting sem felst í víðtækri og sjálfvirkri vísitölutengingu almannatrygginga feli í sér verulega áhættu fyrir stöðugleika í efnahagslífinu og vegi að sjálfbærni opinberra fjármála. Með henni er komið á kerfi sem eykur sjálfvirkni í útgjaldaþróun, magnar hagsveiflur og dregur úr getu stjórnvalda til að beita mótvægisaðgerðum þegar á reynir.“

Það er ekki nóg með að fjármálaráð láti þessi þungu orð falla. Í sérstakri rammagrein er síðan fjallað um þau sjónarmið sem ítrekað komu fram í málinu, þ.e. að vísitölutrygging bóta væri nauðsynleg til að mæta því sem kallað var kjaragliðnun í málaflokknum. Um þetta er fjallað í sérstakri rammagrein á bls. 18 í álitsgerðinni og þar er það niðurstaða fjármálaráðs að þessi meinta kjaragliðnun eigi ekki við rök að styðjast. Þar segir t.d. að „ráðstöfunartekjur 67 ára og eldri færist nær ráðstöfunartekjum þeirra sem eru á aldursbilinu 25–54 ára, hvort sem litið er til meðaltals eða miðgildis“, og það eru sömu niðurstöður um kjör öryrkja.

Virðulegi forseti. Það virðist vera farið í að klára og keyra á þetta mál án þess að hlusta á varnaðarorð, jafnvel þó að sýnt hafi verið fram á með rökum að vandamálið sem frumvarpið ætlaði að leysa sé ekki það vandamál sem það leysir, þ.e. það átti ekki við.

Ef við tökum saman efnahagsárangur ríkisstjórnarinnar fyrstu 18 mánuðina þá eru auðvitað nokkur atriði áberandi. Hagræðingartillögur voru kynntar með pompi og prakt en afskaplega lítið gert í kjölfarið. Ríkisútgjöld hafa verið stóraukin, vísitölutenging bóta samþykkt þvert á ráðleggingar og varnaðarorð og staðan er auðvitað ekki góð. Það er ekki hægt að ætlast til þess að hægt sé að nálgast verkefnið svona og að mælaborðið fari einhvern veginn að taka við sér, enda er það staðan; verðbólga hefur ekki lækkað heldur hefur hún hækkað, hún er föst í um 5%. Þess má reyndar geta að greiningaraðilar telja að raunverðbólga sé sennilega nær 5,5% en þetta hálfa prósent sé falið vegna þeirrar aðgerðar ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið. Stýrivextir eru farnir að hækka á ný, atvinnuleysi hefur aukist, verðbólguvæntingar eru mjög svartsýnar og fasteignamarkaðurinn er mjög þungur. Engar af þeim væntingum sem ríkisstjórnin gaf þjóðinni hafa gengið eftir og það sem mér finnst virkilega grátlegt, virðulegi forseti, er að í stað þess að þétta raðir, bíta á jaxlinn og gera betur þá virðist fókusinn hjá ríkisstjórninni vera annars staðar.

Við höfum eytt síðustu vikum og mánuðum hér á Alþingi í umræðuna um Evrópusambandið. Það er vegna þess að ríkisstjórnin tók þá pólitísku ákvörðun að setja það mál á dagskrá þó að það njóti reyndar mjög takmarkaðs stuðnings, meira að segja meðal ríkisstjórnarflokkanna sjálfra. En það er annað dæmi um hvernig menn virtust líta svo á að þeir neyddust til að efna loforð upp úr stjórnarsáttmálanum. Á meðan heyrist í sjálfu sér lítið frá ríkisstjórninni um efnahagsmálin. Það voru þó kynntar efnahagsaðgerðir í vor, afskaplega þunnar að vísu, en þær fólust í því, eins og ég nefndi hér áðan, að lækka tímabundið virðisaukaskatt á eldsneyti í fjóra mánuði. Að vísu hafði hæstv. fjármálaráðherra skömmu áður, þegar hann var spurður út í þess konar aðgerðir, lýst því yfir að honum þættu þær afskaplega vitlausar og væru dæmi um að pissa í skóinn sinn en var svo mættur og kynnti þessa aðgerð skömmu síðar.

Hitt atriðið sem ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á er að ekki verði gefinn neinn afsláttur af því að skila hallalausum fjárlögum árið 2026. Enginn afsláttur, þetta hefur verið fullyrt. Fjármálaáætlunin sjálf, sem við erum að ræða hér, leggur mikla áherslu á þetta atriði. Fyrsta setning í fyrsta kafla með greinargerð áætlunarinnar segir, með leyfi forseta:

„Þessi fjármálaáætlun markar tímamót. Í haust verða í fyrsta sinn frá árinu 2017 lögð fram hallalaus fjárlög og hallarekstur ríkisins stöðvaður frá og með þeim tíma.“

Nú liggur fyrir, virðulegi forseti, að það er orðið svona næsta augljóst, vil ég meina, að þetta markmið mun ekki ná fram að ganga. Horfur hafa versnað og það má nefna ýmislegt. Samkvæmt þeirri spá sem Seðlabankinn lagði fram nú í maí er atvinnuleysi að aukast úr 4,3% í 5% og hagvöxtur er að lækka úr 2,2% í 1,8%. Ef maður horfir í það sem greiningaraðilar hafa bent á þá bendir margt til þess að einkaneyslan sé að minnka sem auðvitað hefur sín áhrif líka og dregur úr tekjum ríkissjóðs. Auðvitað spilar inn í þetta líka, virðulegi forseti, að í sjálfri áætluninni var svigrúmið kannski ekkert afskaplega mikið, það er í það heila 1,1 milljarður. Það er auðvitað bara hverfandi stærð í öllu samhengi ríkissjóðs. Það má alveg til hliðsjónar vekja athygli á þeirri ágætu framsetningu sem ég hygg að Stefán Vagn Stefánsson, hv. þm. Framsóknarflokksins, hafi bent á, þ.e. að fyrir manneskju með meðaltekjur þá væru þetta kannski eins og einhverjir hundraðkallar.

Það blasir við, virðulegi forseti, að ríkisstjórnin þarf að grípa til einhverra aðgerða ef hún ætlar að standa við loforð um hallalaus fjárlög. Auðvitað vekur það ákveðnar áhyggjur hjá manni, þekkjandi þessa ríkisstjórn, í hvaða átt verður horft. Það er strax byrjað að gefa ýmsar vísbendingar í fjölmiðlum um að þetta verði að sjálfsögðu sótt í formi skattahækkana eða aðhalds á tekjuhlið eins og þetta heitir nú. Það er horft í ýmsar áttir í þeim efnum, til fyrirtækja og fleiri aðila, en þetta mun auðvitað því miður draga úr samkeppnishæfninni og þar af leiðandi bíta í skottið á sér.

Mig langar aðeins, virðulegi forseti, hér í lokin að ræða um stöðu áætlunarinnar í ljósi laga um opinber fjármál en það er sérstaklega rætt um fjármálaáætlun í 5. gr. og kveðið á um að ráðherra skuli leggja þessa tillögu fyrir Alþingi. Svo segir í 3. mgr., með leyfi forseta:

„Reynist hagþróun og efnahagsforsendur fyrir áætlanagerð víkja í teljandi mæli frá því sem gert er ráð fyrir í gildandi fjármálastefnu er heimilt að aðlaga stefnumið um afkomu- og skuldaþróun A1-hluta hins opinbera í sama mæli.“

Aðeins síðar í þessari málsgrein segir, með leyfi forseta:

„Að öðru leyti er gert ráð fyrir að stjórnvöld beiti viðeigandi ráðstöfunum, ef á þarf að halda, til að tryggja að afkoma í fjármálaáætlun og fjárlögum verði í samræmi við markmið fjármálastefnunnar. Mat á frávikum frá upprunalegum efnahagsforsendum og mat á því hvort og í hvaða mæli það hefur áhrif á stefnuferla skal birt í greinargerð með fjármálaáætlun.“

Auðvitað liggur fyrir, virðulegur forseti, að áætlunin er nú þegar orðin mjög skökk. Meiri hluti fjárlaganefndar kemur aðeins inn á þetta og reynir að gera lítið úr því í sínu nefndaráliti. En þegar eitt helsta lykilatriði og eitt helsta útspil ríkisstjórnarinnar var að ná hallalausum fjárlögum og það blasir við að það er ekki að nást þá erum við ekki að tala um eitthvert smáflökt, þetta eru ekki 30 milljarðar upp í 35 eða eitthvað slíkt. Ekki að það væri eitthvert smáflökt, en punkturinn er sá að við erum að fara yfir núllið sem ríkisstjórnin sagði að við myndum ekki gera.

Mig langar í þessu samhengi aftur að vekja athygli á orðum hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar, sem er í 2. minni hluta fjárlaganefndar, en hann fór í þá vinnu að reyna að slá aðeins á hvaða tölur gætu verið á bak við þessar breyttu forsendur. Það er hans mat að það séu 16–22 milljarðar sem þýðir að við erum þá komin með þá tölu í halla.

Virðulegur forseti. Þetta er ekki að nást. Við köllum auðvitað eftir miklu skýrari viðbrögðum. Hvar er planið? Hvar er festan? Hvar er útspil ríkisstjórnarinnar? Og maður veltir fyrir sér hvort það myndi t.d. teljast boðlegt í fyrirtækjarekstri eða í öðrum slíkum störfum að kynna áætlun sem fyrir liggur að stenst ekki.