157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:01]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Nei eða já, af eða á? Stórt er spurt. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að límið í ráðherrastólunum sé einhvers lags frumefni sem ætti heima í lotukerfinu ef vel er að gáð. En ég held að það sé mjög kurteislega sagt í þessu samhengi að láta þar við sitja og segja ríkisstjórnina hafa gefist upp á verkefninu. Ég man ekki eftir neinu viðlíka síðan ég kom hingað inn á þing hvað varðar það að fallast hendur. Það að uppfæra ekki þessa áætlun í ljósi allra þeirra breytinga sem orðið hafa á forsendum, ákveða meira að segja að skrifa það í texta nefndarálits meiri hluta að í þetta sinn verði þetta ekki uppfært — það er fullkomin uppgjöf. Þetta eru ekki þau skilaboð sem ég held að til að mynda að Seðlabankinn hafi verið að vonast til að fá frá ríkisstjórninni. Ég held að svona með tilliti til næstu vaxtaákvörðunar Seðlabankans hafi bankinn verið að vonast til þess að ríkisstjórnin tæki sér tak og reyndi að koma skikki á ríkisfjármálin í stað þess að halda því hér enn fram að það yrðu lögð fram hallalaus fjárlög í september með 1 milljarðs afgangi til samræmis við fjármálaáætlun þegar þeir síðan í hinu orðinu staðfesta það að forsendurnar séu margar hverjar, og sumar hverjar stórar, fallnar.