fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða fjármálaáætlun, þ.e.a.s. stjórnarandstaðan er að ræða fjármálaáætlun því að stjórnarliðar láta ekki sjá sig. Það er sorglegt og dapurlegt að upplifa það hvernig ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fer með opinber fjármál. Það var fullkomin samstaða um það á sínum tíma að breyta lögum um opinber fjármál, koma hér á verklagi sem var faglegra, vandaðra og byggt á bestu mögulegu upplýsingum. Það var fullkomin samstaða um þetta á Alþingi Íslendinga. Allir flokkar voru sammála um þetta. Síðan kemur hæstv. ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og byrjar á því að brjóta lögin um opinber fjármál með því að klára ekki fyrst fjármálastefnu sem á að gera í upphafi hvers kjörtímabils og byggja síðan fjármálaáætlun á henni. En það var ekki nóg heldur fór ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur í þann leiðangur að svíkja öll þau loforð sem hún var kosin út á sem voru einfaldlega það að lækka vexti og verðbólgu. Forystumenn þessarar ríkisstjórnar, bæði fyrir kosningar og eftir kosningar, sögðu einfaldlega: Hér er loksins komið fólk sem kann til verka. Þetta hafa allt verið hálfgerðir vesalingar sem hafa verið hérna á undan en nú erum við komin þannig að ekki hafa áhyggjur. Vextir og verðbólga, það verður nú lítið mál fyrir okkur að klára það.
Núna einu og hálfu ári seinna viðurkenndi hæstv. fjármálaráðherra afsakandi að ekkert af þessu hefði gengið upp. Það er ekki bara að þau hafi hægt á vaxtalækkunarferlinu, því að þau hægðu ekkert á vaxtalækkunarferli Seðlabankans sem var hafið, þau meira en stöðvuðu það og sneru því við. Þau sneru vaxtalækkunarferlinu yfir í vaxtahækkunarferli. Hvað getur ríkisstjórnin gert til að lækka vexti? Það er að sýna ábyrgð og aðhald í ríkisfjármálum. Ábyrgð og aðhald í ríkisfjármálum, gefa réttu skilaboðin, spila með Seðlabankanum, styðja Seðlabankann í sinni vegferð. Gerir hæstv. ríkisstjórn það? Nei. Þegar hún kemur fram með þessa fjármálaáætlun er fjármálaáætlunin rýnd af fjármálaráði sem er faghópur þriggja sérfræðinga sem segir álit sitt á fjármálaáætluninni og kemur með faglegar athugasemdir. Þetta er allt saman gert að erlendri fyrirmynd. Fjármálaráð kom með 15 punkta. Einn var tiltölulega jákvæður; það væri gott að það væri stefnt að hallalausum fjárlögum. Allir hinir, allir hinir punktarnir voru með gríðarlega alvarlegar athugasemdir. Allir þeir aðilar sem komu fyrir hv. fjárlaganefnd og fjölluðu um fjármálaáætlunina tóku undir með fjármálaráði — allir. En hæstv. ríkisstjórn og meiri hluti hv. fjárlaganefndar gerðu ekkert, virðulegur forseti, gerðu ekkert með álit fjármálaráðs. Það er ekki vikið einu orði að því í meirihlutaáliti hv. fjárlaganefndar, ekki einu orði. Það er engin breyting á fjármálaáætluninni lögð til af meiri hluta fjárlaganefndar og þeir hv. þingmenn sem bera ábyrgð á meirihlutaálitinu hafa ekki sést í þessu húsi í dag nema í mýflugumynd. Það er að vísu með heiðarlegri undantekningu því að hv. þm. Grímur Grímsson hefur tekið hér ræðu og svarað ágætlega fyrirspurnum og síðan í byrjun dags sáum við aðeins til hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar og Dags B. Eggertssonar. En annars er þetta þannig að hæstv. ríkisstjórn og hv. meiri hluti fjárlaganefndar eru búin að gefa þessi skilaboð: Við ætlum ekki að gera neitt með faglegar athugasemdir fjármálaráðs, ekki neitt. Við ætlum ekki einu sinni að reikna upp breyttar forsendur. Forsendurnar fyrir fjármögnuninni eru brostnar sem þýðir að það er ekkert að marka þetta plagg. En þeim er slétt sama.
Virðulegi forseti. Þetta er staðan og það getur enginn haldið því fram að við í Sjálfstæðisflokknum og í stjórnarandstöðunni höfum ekki gert heiðarlega tilraun til að vekja athygli hv. meiri hluta fjárlaganefndar á þessu. En sumu fólki er ekki hægt að hjálpa.