157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:14]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hv. þingmaður sagði að þetta nýttist stjórnarandstöðunni vel og þetta nýtist stjórnarþingmönnum líka vel því að betur sjá augu en auga og þarna er sjónarhorn fólks sem hefur sérþekkingu á þessum málum. Þarna er langskólagengið fólk í hagfræði, doktorar og masterar, og aftur þá er þetta að erlendri fyrirmynd. Ég hef komið að þessu allt frá því að ég var í meiri hluta í fjárlaganefnd og sem ráðherra og menn hafa alltaf litið til álits fjármálaráðs, eðlilega, og ekki litið á það sem refsivönd heldur leiðbeiningar um það hvað betur megi fara. Álitsgerðarnar hafa alltaf verið, mér hefur fundist það, góðar og nytsamlegar en ég man aldrei eftir að hafa séð svona álitsgerð. Hún er einstaklega vönduð og skýr og auðvelt að lesa í gegnum hana en varnaðarorðin eru svo mörg. Í inngangskaflanum, þar sem samantektin er, erum við með 15 punkta sem eru dregnir sérstaklega út. Þar af er einn jákvæður en allt annað eru mjög alvarlegar athugasemdir. Það hafa engin svör komið frá hæstv. ríkisstjórn eða meiri hlutanum í hv. fjárlaganefnd um að þarna sé um einhvern misskilning að ræða eða eitthvað slíkt. Það er ekkert slíkt og ekkert hefur komið frá fjármálaráðuneytinu um það. Þetta er bara látið hanga. Ég spurði hér hv. þm. Dag B. Eggertsson hvort menn ætluðu bara að hætta með fjármálaráðið og hv. þingmanni stjórnarliðsins fannst þetta bara mjög gott og nýttist vel. En til hvers, ef það er ekkert gert með það? Ég hef fullan skilning á því að þú getir ekki gert allt og kannski finnst þér eitthvað ósanngjarnt en það er ekkert gert með þetta, nákvæmlega ekkert.