fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka svarið. Þetta var eiginlega það sem ég ætlaði að koma inn á í seinna andsvari mínu. Ég taldi mig vera búinn að telja þetta út svona nokkurn veginn með þessum hætti en af því að ég sit ekki í fjárlaganefnd er gott að þetta liggi alveg skýrt fyrir. Það að 14 atriði af 15 séu neikvæð í áherslupunktum fjármálaráðs og að í engu sé brugðist við þessum 14 atriðum ber ekki vott um skilning á alvarleika málsins, svo ég reyni að orða þetta hóflega. Það er hreinlega alveg ótrúlegt að fjármálaráð — nú hef ég lesið allar þessar athugasemdir en hafði kannski ekki unnist tími til að glöggva mig á því hvernig hver og ein þeirra hefði verið meðhöndluð en þarna eru settar fram 14 athugasemdir með varnaðarorðum, neikvæðar, hvað sem við köllum það, og ekki brugðist við neinni þeirra með aðgerð ríkisstjórnar eða með þeim hætti í nefndaráliti að menn hafi tiltrú á að skilaboðin hafi náð í gegn. Þetta slær mann svolítið meira af því sama sem maður hefur upplifað núna í meira mæli heldur en hjá fyrri ríkisstjórnum, að það sé dálítið eins og að eiga samtal við Svörtu keiluna hérna fyrir utan Alþingishúsið að ræða vandamál sem upp koma og athugasemdir sem gerðar eru. En það tekur nú alveg steininn úr þegar fjármálaráð í sinni lögbundnu vinnu er hanterað með þeim hætti sem hér blasir við.