157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

Varamenn taka sæti.

[10:30]
Horfa

Forseti (Ingvar Þóroddsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Logi Einarsson muni vera fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Sigurjón Þórðarson verði fjarverandi á næstunni.

Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, Sæunn Gísladóttir, og 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi, Katrín Sif Árnadóttir.

Sæunn Gísladóttir og Katrín Sif Árnadóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnar velkomnar til starfa að nýju.