samstarf við Bandaríkin.
Virðulegi forseti. Viðsnúningur ríkisstjórnarinnar þegar kemur að hagsmunagæslu gagnvart Bandaríkjunum er alger og það er áhyggjuefni. Á umrótatímum getum við þurft að leggja meira á okkur við að gæta hagsmuna Íslands og í því felst m.a. að sinna bandamönnum okkar, hlúa að samstarfi og efla tengsl. Í síðustu ríkisstjórn var lögð mikil áhersla á samskipti við Bandaríkin. Sjálfstæðismenn í utanríkisráðuneytinu lögðu áherslu á fundi í Bandaríkjunum vegna hefðbundinna utanríkismála, öryggis- og varnarmála og vegna viðskiptamála. Við tókum á móti fjölmörgum bandarískum gestum, m.a. utanríkisráðherrum í fleirtölu, varaforseta Bandaríkjanna og þingmönnum. Sérstöku efnahagssamráði var komið á fót við Bandaríkin. Þetta einskorðaðist ekki við Bandaríkin en hagsmunir okkar gagnvart Bandaríkjunum eru hins vegar margslungnir og vega þungt.
Ég hef þegar lagt fram fyrirspurn um samskipti hæstv. utanríkisráðherra við Bandaríkin. Hún hefur verið með annan fótinn í Brussel frá því hún tók við embætti en það sama gildir ekki um Bandaríkin. Á meðan ráðherrar allra Norðurlandanna hafa undanfarið átt fundi í fleirtölu með bandarískum ráðherrum sker Ísland sig algjörlega úr. Það á líka við um hæstv. forsætisráðherra. Kollegar hennar á Norðurlöndunum hafa átt fundi og símtöl við forseta Bandaríkjanna og við ráðherra í ríkisstjórn hans. Hæstv. forsætisráðherra hefur hins vegar enn ekki heimsótt Washington eða átt formlega fundi með bandarískum stjórnvöldum.
Virðulegi forseti. Hvað veldur? Er hæstv. forsætisráðherra með annan fótinn og hugann í Brussel eins og hæstv. utanríkisráðherra? Við hljótum að gera þá kröfu að ráðherrar okkar sinni þessari mikilvægu bandalagsþjóð okkar af fullum krafti og til jafns við kollega þeirra á Norðurlöndunum.