samstarf við Bandaríkin.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Já, pólitíska samtalið við Bandaríkin hefur breyst. Á Norðurlöndunum hefur verið gefið í en verulega dregið úr hjá þessari ríkisstjórn. Óformlegt spjall við kaffivélar eða við kvöldverðarboð er ekki það sem ég er að spyrja um. Hæstv. forsætisráðherra sker sig algerlega frá sínum kollegum á Norðurlöndunum þegar kemur að samskiptum við Bandaríkin. Ég endurtek að þessi ríkisstjórn hefur tekið algera U-beygju í samskiptum við Bandaríkin. Mig langar að nefna nýlega sameiginlega yfirlýsingu 22 bandalagsríkja um ógnarstarfsemi íranska ríkisins að undirlagi Bandaríkjanna. Öll Norðurlöndin skrifa þar undir nema Ísland. Hvernig stendur á þessu, virðulegi forseti? Er Ísland orðið utanveltu þegar kemur að samskiptum við Bandaríkin? Eða var það mat ríkisstjórnar hæstv. forsætisráðherra að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af þessari ógn? (Forseti hringir.) Samskipti við Brussel og áhugi á Evrópusambandinu taka augljóslega sinn toll en við gerum þá kröfu að hagsmunagæslu sé sinnt gagnvart Bandaríkjunum. Minna má það ekki vera.