samstarf við Bandaríkin.
Forseti. Ég get ekki tekið undir þennan málflutning og ég verð að segja að mér finnst ekki góður bragur á því hjá þingmanninum að varpa rýrð á eða tortryggja samskipti milli þessara landa. Það er mjög mikilvægt að það séu góð samskipti milli þessara landa og það hefur að jafnaði verið sá bragur á í þessum þingsal að eining ríki þegar kemur að utanríkismálum. Ég geri mér grein fyrir því að það liggur augljóslega fyrir að það eru skiptar skoðanir þegar kemur að því að kanna aðildarviðræður við Evrópusambandið, en við eigum ekki að vekja tortryggni eða jafnvel hræðslu úti í samfélaginu um að við eigum ekki góð samskipti við Bandaríkin. Það liggur alveg fyrir að það hefur verið vel unnið að þessu. Það breytir því ekki að vissulega hafa samskipti víða breyst en það er ekki rétt að fundir eða samskipti hafi verið með allt öðrum toga en milli annarra landa. Það er allur gangur á því. Samskipti okkar við Bandaríkin eru góð. Við vinnum ötullega að því. Við höfum verið mjög jákvæð þegar kemur að því að sækja fundi. Það hefur verið mikið um að vera í alþjóðamálum. Ég verð að nefna það sérstaklega, af því að hv. þingmaður nefnir það hér, að þessi ályktun barst til okkar seint á föstudagskvöldi, við höfðum örfáa klukkutíma til að bregðast við. Síðar kom önnur ályktun sem tók nákvæmlega undir það sama og undir það ritaði íslenska þjóðin í gegnum ríkisstjórnina. Við höfum því alveg sýnt lit þegar kemur að aðgerðum í Hormússundi og þau vita alveg í Bandaríkjunum hvar við stöndum hvað það varðar.