157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

lán ferjunnar Baldurs til Vestmannaeyja.

[10:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra í ljósi þess að við erum komin hér undir þinglok, fer að styttast í þessu hjá okkur, og mér hefur þótt heldur vanta upp á lagni við verkstjórn í gegnum veturinn og má sem dæmi nefna að hér stóðu Grindvíkingar fyrir utan Alþingishúsið, á föstudaginn hefur það sennilega verið, og mótmæltu því með hvaða hætti þeir eru hanteraðir nú um stundir. Við sjáum hvað innri verkefnin varðar að það er bara í dag verið að afgreiða nefndarálit í flóknum málum út úr þingnefndum eftir að starfsáætlun þingsins hefur runnið sitt skeið og áfram mætti telja. Fjármálaáætlunin er auðvitað kapítuli út af fyrir sig. Ég ætla ekki að fara út í það hér.

Það sem mig langar til að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í er meðhöndlun ríkisstjórnarinnar á lítilli eyju í Breiðafirði sem er samt menningarlegt stórveldi í sögulegu samhengi. Mér hefur þótt svolítil líkindi með því sem við okkur blasir inni í Evrópusambandinu, endi sú vegferð þar illu heilli, samanborið við viðbrögð ríkisstjórnarinnar við áhyggjum þeirra sem búa í Flatey og þeirra sem búa sitthvorum megin fjarðar í tengslum við það að Baldur var fluttur til Vestmannaeyja til að þjónusta siglingarleiðina þar. Mig langar til þess að spyrja verkstjóra ríkisstjórnarinnar, hæstv. forsætisráðherra, hvort hún telji svör ríkisstjórnarinnar næg. Ástæða þess að ég spyr er að það hefur verið mjög erfitt fyrir Breiðfirðinga og þá sem hafa hagsmuni af siglingum um Breiðafjörðinn að fá svör frá hæstv. innviðaráðherra. Það gekk reyndar svo langt að menn hófu að safna undirskriftum á island.is til að hvetja hann til að taka upp símann. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Hver eru raunveruleg skilaboð ríkisstjórnarinnar til þessa litla samfélags sem þarna er og þeirra samfélaga sem eru sitthvorum megin fjarðar? Mér þykir þetta allt bera keim af því sem líklegt er að bíði okkar, (Forseti hringir.) hvað raunveruleg áhrif varðar, takist vegferð ríkisstjórnarinnar sem nú er fyrir höndum um að fara inn í Evrópusambandið.