lán ferjunnar Baldurs til Vestmannaeyja.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Mér þykir það helst til langsótt að tengja þessa stöðu sem upp er komin gagnvart Vestmannaeyjum og Flatey við lagni í mögulegum viðræðum við Evrópusambandið. En gott og vel. Ég get vel tekið undir að það er auðvitað miður að þetta sé staðan. Þetta er óþægileg staða að vera í. Það hefur verið óásættanleg staða reyndar þegar kemur að siglingum milli lands og eyja, sérstaklega Vestmannaeyja, í langan tíma og þetta er vissulega ekki ný áskorun sem ríkisstjórnin stendur frammi fyrir. Það kemur upp þessi staða, sem ég veit vel að hv. þingmaður þekkir mætavel, að það vinnur einhvern veginn allt gegn hvert öðru. Það er bæði höfnin og það er skipið og svo er það Herjólfur III sem átti að vera á betri stað en virðist ekki hafa verið á jafn góðum stað og við töldum. Þetta er auðvitað ekki ásættanlegt. Þetta er hins vegar bara staðan sem við stöndum frammi fyrir. Baldur er varaskip og það er hægt að grípa til þess að nota Baldur við þessar aðstæður. Það er auðvitað ekki ákjósanlegt en það er engin landleið milli Vestmannaeyja og meginlandsins, ef við eigum að horfa á Ísland sem meginlandið, þannig að við verðum að horfa á þá forgangsröðun með þeim hætti að það er ekkert annað í boði. Við höfum auðvitað boðið upp á flugleiðir milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Það eru hins vegar fá sæti í boði og engan veginn það sama og getur gengið upp þegar kemur að því að nota ferjuna. Ég skil mjög vel að fólk sem hefur verið að nýta sér Baldur og fyrirtæki séu vonsvikin. Þetta er óþægileg staða að vera í. Þetta hefur dregist lengur en ég hafði vonað en það eru því miður að einhverju leyti praktískar ástæður fyrir því, viðgerðum hefur t.d. seinkað. Nú þekki ég ekki nákvæmlega fundarskipanina hjá hæstv. innviðaráðherra og hvað hefur farið þeim á milli en ég skil ósættið. En þetta er einfaldlega staðan sem við erum í og við verðum að vinna hratt og örugglega úr henni.