157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

lán ferjunnar Baldurs til Vestmannaeyja.

[11:00]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Auðvitað, svolítið eins og er í Evrópusambandinu, þá hverfðist svarið dálítið mikið um samgöngur til Vestmannaeyja sem eru auðvitað allar í henglum líka. En það er auðvitað þannig, eins og er í Brussel-hreppi, að hagsmunir þjóða eru metnir í mikilvægisröð og það er ekki að fara að breytast. En ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og vona að hún sem verkstjóri ríkisstjórnarinnar reyni að koma þeim við Breiðafjörðinn til aðstoðar því að sannarlega er ráðherra, þingmaður kjördæmisins, heldur að draga lappirnar í þeim efnum.

Mig langar hér í seinni spurningu minni að spyrja út í — og þá er ég að spyrja hæstv. forsætisráðherra sem hagfræðing. Í Sprengisandi um helgina var viðtal við Jón Helga Egilsson, doktor í hagfræði, þar sem hann sagði að það væri óumdeilt að fastgengi, eins og viðhaft er um stjórn peningamála evrunnar, sé ekki besta leiðin til að tryggja eða hámarka samkeppnishæfni þjóða. Mig langar til að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í afstöðu hennar til þessara sjónarmiða.