157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

atvinnuleyfi erlendra námsmanna.

[11:09]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Mér finnst áhugavert þetta tungutak hjá Miðflokknum sem eilíflega talar um litlu útlendingamálin. Samt er það nú svo að Miðflokkurinn treystir sér yfirleitt ekki til að styðja þessi mál þannig að eitt er að tala, annað er að gera. Ég er hér að benda á þær aðgerðir sem við erum í. Það er verið að herða á skilyrðum með því að námsmenn þurfi að sýna fram á með betri hætti en verið hefur að námsárangur sé fullnægjandi. Við erum að herða á fjölskyldusameiningum þar sem frávik íslensks regluverks frá því sem annars staðar tíðkast er ótrúlegt. Við erum að stytta dvalarleyfi í 18 mánuði eftir nám og við erum að herða mjög að diplómanámi. Það hefur verið leiðin inn fyrir þau sem raunverulega koma í þeim tilgangi fyrst og fremst að vinna. Við litum til Norðurlandanna og erum að byggja hér skynsamlegt regluverk. Það sem okkur greinir kannski á um er að mér finnst það nákvæmlega ekkert vandamál að fólk komi hingað til lands til að fara í nám. Mér finnst það nákvæmlega ekkert vandamál að fólk komi hingað til lands til að vinna. Íslenskt atvinnulíf væri lamað annars. En við verðum að mynda okkur stefnu og aðgerðir sem standast tímans tönn og einhverja skynsemi, ekki bara vera í upphrópunum.