fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Það er með ánægju og stolti sem ég styð fjármálaáætlun, og Samfylkingin. Þetta er vönduð áætlun, ígrunduð, en hún er margflókin eins og efnahagslegur veruleiki Íslands. Það felst í henni aðhald en líka viðbót til mikilvægra verkefna, sérstaklega á sviði heilbrigðismála. Þar er aukið umtalsvert í. Það er öllum ljóst að átak við fjölgun hjúkrunarrýma er ekki bara mikilvægt hjúkrunarrýmanna vegna heldur vegna allrar þjónustukeðju heilbrigðiskerfisins og áhersla á heilbrigðisþjónustu um allt land líka. Ég styð fjármálaáætlunina því með ánægju.