157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[12:33]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þessi fjármálaáætlun er vanbúin að mjög mörgu leyti. Það eru breyttar forsendur hvað hana varðar. Meiri hlutinn, stjórnin, ákveður að hunsa þær breytingar sem hafa orðið á forsendum þessarar áætlunar. Þjóðhagsspá er mun verri en gert var ráð fyrir. Atvinnuleysi er miklu hærra en gert var ráð fyrir. Ákveðnar breytingar hafa verið gerðar á frumvörpum svo sparnaður verður minni. Allt þetta ákveður stjórnarmeirihlutinn að hunsa. Það er fyrir fram ljóst að þessi áætlun mun ekki standast. Afgangur næsta árs verður ekki 1,1 milljarður. Það verður enginn afgangur næsta ár. Það er fyrirséð að það verður 12–20 milljarða kr. halli á næsta ári. Samt á ekki að gera neinar breytingar á fjármálaáætlun.