fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Fjármálaráðherra lýsti því yfir að hann tæki við góðu búi og væri öfundaður af fjármálaráðherrum annarra Evrópuríkja. Það er gríðarlega mikilvægt að halda áfram með þann árangur sem hefur náðst í ríkisfjármálunum undanfarinn áratug. Við erum öfunduð. Það er lykilatriðið, agi og festa. Það kemur á óvart, í vinnu okkar í fjárlaganefnd, að það eru engar nýjar tillögur frá meiri hluta nefndarinnar. Það er ekkert lagt til málanna, ekkert. Stimpilpúði — hugmyndafræðin er bara stimpilpúði. Við erum á sama stað og við byrjuðum á í febrúar og mars í fyrra þar sem meiri hlutar nefnda þingsins hugsuðu þingnefndir bara sem stimpilpúða. Það er ekkert lagt til þrátt fyrir sterkar umsagnir þar sem gott eitt er lagt til málanna. Það er lausung í vinnubrögðum meiri hlutans. Agi og festa í ríkisfjármálum er lykilatriði og ég vona svo sannarlega að í haust, þegar við tökum til við fjárlagaumræðuna, verði góðar umsagnir við það mál teknar til álita og að agi og festa verði tekin sterkari tökum en verið hefur í þessari vinnu núna.