fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Það er einmitt málið. Það er ekki hægt að greiða atkvæði um þessa fjármálaáætlun því að hún er ekki í samræmi við lög um opinber fjármál og hún er röng. Það stendur í nefndaráliti meiri hlutans, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn gerir ekki tillögur um breytingar á áætluninni að þessu sinni, þar sem ekki liggur fyrir heildstætt mat á öllum þeim forsendubreytingum sem orðið hafa frá því að áætlunin var lögð fram.“
Það er samt sem áður rakið hér í nefndarálitinu hvaða forsendur hafa breyst og við vitum það. Hér er hagvöxtur á niðurleið, atvinnuleysi á uppleið og stýrivextir fara hækkandi. Nefndarmenn í fjárlaganefnd eru síðan spurðir: Bíddu, af hverju var þetta ekki uppreiknað? Og svarið er: Það stendur á bls. 30 í fjármálaáætluninni frá fjármálaráðherra.
Virðulegur forseti. Á síðustu þingum hefur fjármálaáætlun iðulega verið breytt að beiðni fjárlaganefndar sem á að sinna því verkefni. En hér er bara verið að stimpla það sem kom frá hæstv. fjármálaráðherra og það er ekkert gert með þær athugasemdir sem koma frá fjármálaráði eða þær breytingar sem orðið hafa síðan fjármálaáætlun var lögð fram.
Virðulegur forseti. Þetta eru ótæk vinnubrögð hjá hæstv. ríkisstjórn.