fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um fjármálaáætlun og forsendur hennar byggjast á spá Seðlabanka Íslands frá febrúar síðastliðnum en bankinn birti maíspá sína hinn 20. maí síðastliðinn. Fyrir lá við framlagningu þeirrar fjármálaáætlunar sem við greiðum nú atkvæði um að hún yrði ekki uppfærð miðað við maíspá Seðlabanka Íslands, einkum vegna þess að slík uppfærsla tekur alltaf tvær vikur sem að óbreyttu myndi seinka umræðum um fjármálaáætlun og eftir atvikum frestun þings. Frumvarp til fjárlaga sem lagt verður fram við upphaf þings í september mun byggjast á maíspá Seðlabanka Íslands og við þinglega meðferð verða forsendur uppfærðar miðað við ágústspá bankans. Það sýnist sitt hverjum hvað það varðar að fjármálaáætlun hafi ekki verið uppfærð miðað við maíspá Seðlabankans en það er rétt að hafa í huga að þetta hefur minna vægi nú þegar stefnumörkun í ríkisfjármálum hverfist einkum um að halda raunvexti útgjalda í skefjum en áður þegar fjármálareglur giltu um þróun afkomu hins opinbera.