fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Það er morgunljóst að forsendur eru brostnar fyrir þessari fjármálaáætlun og fyrir hallalausum fjárlögum. Ríkisstjórnin ætlar sér engu að síður að afgreiða áætlunina hér í dag. Engar breytingar hafa verið gerðar þrátt fyrir verulega breyttar og brostnar forsendur. Meiri hlutinn leggur heldur til að þetta verði „skoðað“ af embættismönnum í haust. Hv. þingmenn Njáll Trausti Friðbertsson og Bryndís Haraldsdóttir töluðu hér um stimpilpúðana á Alþingi. Þetta eru, virðulegi forseti, dapurleg vinnubrögð.