fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Við hljótum að gera þá lágmarkskröfu að fjármálaáætlun sé raunhæf og að hún sé trúverðug en þessi áætlun sem hér er verið að leggja upp með byggist ekki á traustum grunni og hún er vart pappírsins virði.
Virðulegi forseti. Það er ekki forsvaranlegt að leggja þetta fram hér eins og ríkisstjórnarflokkarnir ætla sér að gera. Þetta er ekki ábyrg hagstjórn. Ríkisstjórnin viðurkennir að forsendur hafi breyst en breytir þó ekki áætluninni. Samt sem áður hefur fjármálaráð gagnrýnt hana og hér kemur hv. þm. Grímur Grímsson og talar um að það sé ekki tími, að það þurfi tvær vikur. Samt höfum við í stjórnarandstöðunni boðið ríkisstjórninni það að við skulum ræða þessa fjármálaáætlun síðar í sumar á þingstubbi í lok ágúst en því hefur verið alfarið hafnað. Það sem þjóðina vantar núna er agi, ráðdeild og virðing fyrir skattfé almennings. Hér þarf efnahagsstjórn sem tekur þetta verkefni alvarlega (Forseti hringir.) og þess vegna getum við ekki samþykkt þessa fjármálaáætlun eins og hún er.