157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[12:45]
Horfa

Árni Helgason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér ætlum við að taka til afgreiðslu fjármálaáætlun þótt fyrir liggi að forsendur hennar séu brostnar og fyrir liggi að afgangurinn sé ekki 1,1 milljarður, það er líklega nær 15–20 milljarða halla. Þetta er auðvitað allt saman mjög sérstakt. Í fyrstu setningu í greinargerð með áætluninni segir að hún marki sérstök tímamót því að hér verði lögð fram hallalaus fjárlög. Við erum því ekki að tala um neina smábreytingu, við förum úr milljarði í afgang í halla eins og staðan er í dag. Það er dálítið merkilegt því að það er í raun það helsta sem þessi ríkisstjórn hefur sagt upp á síðkastið í efnahagsmálum, að það verði hallalaus fjárlög. En nú liggur fyrir að forsendur þessarar áætlunar eru brostnar. Því má velta fyrir sér, virðulegur forseti, hvernig færi, ef við tökum bara dæmi úr atvinnulífinu, ef stjórnendur í fyrirtæki kæmu fram og kynntu rekstraráætlanir en það fylgdi með að þær væru reyndar ekki réttar, þær yrðu lagaðar í haust. Það væru auðvitað vinnubrögð sem enginn myndi sætta sig við, fólk yrði sent til baka og gert að koma með rétta og uppfærða áætlun.

Virðulegur forseti. Það er fylgst með þessu plaggi úti í þjóðfélaginu. Það skiptir máli hvernig að þessu er staðið. Það er ekki boðlegt að afgreiða áætlun sem fyrir liggur að stenst ekki.