fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Fjármálaáætlun mun ekki standast, það er augljóst, forsendur eru það verulega brostnar. Hvað er þá til ráða, frú forseti? Hvað er til ráða fyrir stjórnina? Það eru þrír möguleikar. Í fyrsta lagi að skila áætluninni með halla. Þeim er algerlega fyrirmunað að gera það. Það er þeirra helsta skrautfjöður, frú forseti, að sýna fram á afgang á næsta ári, jafnvel þó að það sé löngu fallið í raun og veru. Það er þeirra skrautfjöður og þau munu ekki falla frá því. Annar möguleiki er að koma með harðar aðhaldsaðgerðir þannig að þetta muni standast. Þau kunna það ekki, frú forseti. Þau hafa sýnt að þau kunna ekki að draga saman. Þau kunna bara að belgja út báknið. Þriðji möguleikinn, frú forseti, er auðvitað nýir skattar. (Forseti hringir.) Þangað munu þau fara en þau vilja bara ekki gefa það upp. Hvaða nýju skatta munum við sjá hér í haust? (Forseti hringir.) Það er stóra spurningin. Hvað dettur þeim í hug?