fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Í fyrra, minnir mig, var tíu ára afmæli laga um opinber fjármál og ég lagði það til að ríkisstjórnin færi í heildarendurskoðun, það væri skynsamlegt að skoða hvaða áhrif þau hefðu haft. Tilfinning allra er sú að þau hafi aukið aga og hjálpað til við að auka virðingu og trúverðugleika þeirra hluta sem hér eru lagðir fram. Ríkisstjórnin fór aðra leið, breytti og kom með stöðugleikareglu sem að mati fjármálaráðs er ógagnsæ og óskilvirk. Hún gefur það síðan út að hún ætli ekki að uppfæra forsendur, alveg sama hverjar þær eru, og taka ekkert mark á 15 alvarlegum ábendingum fjármálaráðs, fjármálaráðs sem við höfum verið að byggja upp sem mikilvægan aðila til þess að hjálpa okkur við að auka trúverðugleika þessarar vinnu. Meiri hlutinn fjallar ekki um það í sínu nefndaráliti. (Forseti hringir.) Forsendurnar eru því miður brostnar. Þess vegna er mjög erfitt fyrir ríkisstjórnina að leggja þetta plagg fram sem allir vita að stenst enga skoðun.