fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Fjármálaáætlun er ekki bara einhvers konar áætlun eða að fjárlögin sjálf séu aðalmálið. Samkvæmt lögum um opinber fjármál er fjármálaáætlun ætlað að tryggja langtímahugsun og stöðugleika í ríkisfjármálum. Fjárlögin eiga að byggja á þessari áætlun sem að sjálfsögðu kallar á það að ef forsendur breytast í áætluninni verður að uppfæra hana svo fjárlögin sjálf standi á einhverjum grunni. Ég hef heyrt hér nokkra hv. stjórnarliða ýja að því að það sé málum blandið að uppfæra þetta eða hafi jafnvel ekki verið gert. Ég vil því segja skýrt að fyrir árin 2020–2024, 2021–2025 og 2023–2027 var fjármálaáætlun uppfærð miðað við breyttar forsendur til þess einmitt að fjárlögin, sem komu einhverjum vikum eða mánuðum seinna, myndu standa á einhverjum grunni. Það er því vel hægt, frú forseti, ef það er snefill af áhuga eða vilja til þess, að vinna þetta með sóma.