157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[12:54]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnatíma um miðjan maí síðastliðinn spurði ég hæstv. forsætisráðherra um hugsanleg viðbrögð ríkisstjórnarinnar við hærri verðbólguvæntingum á markaði og spurði hæstv. ráðherra hvað ríkisstjórnin hygðist gera til að auka tiltrú markaðarins, fyrirtækja og fólksins í landinu á getu ríkisstjórnarinnar til að vinna bug á verðbólgu og vöxtum. Hér er komið einhvers konar svar. Sjálfum finnst mér það mjög lélegt, það er verið að afgreiða fjármálaáætlun á forsendum sem eru fallnar úr gildi. Það er auðvitað alls ekki neitt svar heldur að gera eins og hæstv. forsætisráðherra gerði hér fyrr í morgun, að segja að það sé ástæðulaust að fjalla aftur um málið í haust þegar svo stutt er í umræður um fjárlögin sjálf. Lög um opinber fjármál eru algjörlega skýr um það (Forseti hringir.) að það er fjármálaáætlun sjálf sem á að liggja fjárlögum til grundvallar en ekki öfugt.