157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[12:55]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Skiptir engu máli að hafa forsendur réttar? Skiptir það engu máli vegna þess að þetta er bara áætlun? Er þá ekki alveg eins hægt að sleppa þessu? Þurfum við eitthvað að vera að gera þetta? Fjármálaáætlun á nefnilega að sýna stöðuna eins og hún er, ekki eins og ríkisstjórnin vonar að hún verði. Þessi fjármálaáætlun byggir ekki á að ríkið fari betur með almannafé. Hún byggir á því að ríkið taki meira til sín. Í sjálfri áætluninni er talað um að aðhaldið sé einkum á tekjuhliðinni. Við vitum hvað það þýðir. Það þýðir skattahækkanir. Þegar ríkisstjórnin talar um aðhald er hún í raun að tala um hærri skatta og þegar ríkisstjórnin talar um stöðugleika er hún í raun að tala um meiri álögur og þegar talað er um viðsnúning þá er í raun verið að tala um að heimilin og fyrirtækin borgi meira. (Forseti hringir.) Það er ekki boðlegt, virðulegi forseti, að ríkisstjórnin skuli leggja þetta mál fram með þessum hætti eins og hér er og ég legg til að þau sleppi þessu.