fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um tillögu 2. minni hluta, þess sem hér stendur, um að vísa einfaldlega þessari fjármálaáætlun aftur til ríkisstjórnar til betri afgreiðslu. Eins og hefur komið hérna fram í umræðum um atkvæðagreiðsluna sjálfa þá er það alveg ljóst og það er öllum ljóst að þessi áætlun er ekki fullunnin. Hún er ekki uppfærð. Tölurnar í áætluninni eru ekki réttar og það er ábyrgðarhluti, virðulegur forseti, að fara að samþykkja hér fjármálaáætlun sem við vitum að er röng. Það er það eina rétta í stöðunni að hæstv. ríkisstjórn sjái sóma sinn í því að draga þessa tillögu til baka, við vísum henni aftur til ríkisstjórnarinnar til betri umræðu og uppfærslu og við tökum síðan umræðu um rétta fjármálaáætlun. Þingið á heimtingu á slíku.