fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Það er með ólíkindum að hæstv. ríkisstjórn hafi ekki tekið boði okkar um að fresta umræðu um fjármálaáætlun og við myndum koma saman í ágúst og afgreiða hana. Þá hefði verið búið að uppreikna og gera þær ráðstafanir sem augljóst er að þarf að gera. En í ljósi þess að ríkisstjórnin þorir ekki að koma hér til þings í ágúst og ræða Evrópusambandið og klára fjármálaáætlun þá er auðvitað ekkert annað hægt en að vísa þessu máli frá, því áætlunin er ótæk eins og hún liggur fyrir núna. Þegar fjárlögin koma svo í haust þá verða þau ekki í samræmi við þessa fjármálaáætlun. Það er öllum orðið ljóst. Það er ekki í samræmi við lög um opinber fjármál þannig að, virðulegur forseti, auðvitað hefði ríkisstjórnin átt að taka því boði fegins hendi að fá að koma hér í ágúst og klára þessa fjármálaáætlun sína. En fyrst svo er ekki þá er allt eins gott að vísa þessu frá.