fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Það hefur legið fyrir alveg frá framlagningu þessarar fjármálaáætlunar að verklagið er breytt og nú byggjum við á spá Seðlabanka Íslands. Það getur ekki verið þannig að við hlaupum alltaf til í ágúst og höldum þingstubb rétt áður en fjárlög eru lögð fram. Það væri alger vitleysa. Ég hafna að sjálfsögðu þessari frávísunartillögu. Ég held að umræðan hérna snúist kannski fyrst og fremst um að afvegaleiða og beina sjónum frá þeirri staðreynd að ríkisstjórn undir forystu Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er loksins að takast það sem t.d. Sjálfstæðisflokknum með allt sitt tal um ábyrga hagstjórn o.s.frv. tókst ekki hérna á síðustu átta árum; að leggja fram fjármálaáætlun um hallalaus fjárlög, fylgja henni eftir með skýrum hætti og ná fram alvörusparnaði í ríkisrekstri. (Forseti hringir.) Ólíkt því sem haldið er fram hér í þessum sal er afkomubatinn langmest tekinn út á útgjaldahlið ríkisfjármálanna með stórtækari hagræðingaraðgerðum en hefur verið ráðist í um langa hríð.